Var verið að selja S7E nýjan hérna á tilboði um daginn á 69.000. Annars er hann nuna á 89.000. Þá myndi ég frekar henda auka 9þ kalli til þess að fá ábyrgð hérlendis.
Þetta eru nú bara tveir nýir símar sem ég og félagi minn keyptum úti. Ástæða sölunnar er einfaldlega sú að við höfum ákveðið að fara frekar í S8 þar sem stutt er í að hann verði gefinn út.
Þeir sem vilja kaupa símana hér á landi fyrir 89-99 þúsund kr.- er meira en velkomið að gera það, við erum nú bara að hugsa þetta fyrir þá sem vilja spara sér einhverjar krónurnar fyrir nýja flotta síma.
Símarnir eru keyptir í Póllandi í einni stærstu raftækjaverslun Evrópu að nafni Mediamarkt. Ekkert mál að leyfa nótu að fylgja.