psteinn skrifaði:Takk fyrir svörin strákar
Mér heyrist að þessi Corsair H100i v2 sé bara allt í lagi. Vona að H440 kassinn nái að dempa niður í hljóðinu smá. Fæ mér svo NF-F12 aðeins seinna. Finnst samt frekar leiðinlegur liturinn á þeim

þeir gera ekki svartar útgáfur?

Þessu get ég svarað ágætlega þar sem ég er með H100i og H440, gleymdu því að setja hana í toppinn því þessi kassi er með svo glatað ventilation út um hann. En hún svínvirkar að setja hana að framan. (með þann mínus að hita kassann meira en CPU minna og fækka möguleikum á diskarekkum).
Persónulega er ég með 3 x Corsair AF120 í push að framan og 2 x SP120 PWM í pull á vatnskassanum að framan og svo 2 x AF140 út að ofan og 1 x 120 AF út af aftan. (sem ég ætlaði nú einhverntíma að uppfæra í AF 140.
(já það eru total 8 kassaviftur í kassanum + 2 á GPU en PSU RM750 viftan fer aldrei í gang og hún er vel silent þrátt fyrir allt þetta magn og glugga).
Vandamálið við þetta combó er þó að maður þarf fleiri skrúfur til að skrúfa viftur báðu megin í H100i og þetta eru einhverjar heimskuleg tommumál. Ég pantaði á ebay einhverjar 150 stk (gat ekki fengið færri) svo ég gæti kannski sent þér nokkrar, því ég fann þetta hvergi á íslandi.
Ef þú vilt myndir þá geturðu fengið þær í PM.