Gat verið að ég slyppi ekki jafn vel og fyrst á horfðist. Það sleppur enginn það vel frá svona bílveltu þar sem hús bílsins kremst niður í farþegarýmið eins og má sjá á myndunum.
Eftir spjall við nokkra bílakalla á Facebook þá skilst mér að það sé bara þekkt vandamál að Pickup'ar fari svona rosalega illa í veltum og því ekkert vit í því að vera að velta þeim...
En já, ég er alveg að farast í bakinu. Þarf að taka tvö mismunandi sterk verkjalyf og bólgueyðandi til þess að geta function'að á 60% venjulegu capacity... Hálsinn er fínn en bakið er í klessu.
Þurfti að fara með sjúkrabíl á Selfoss á Sunnudaginn þann átjánda. Það leið næstum yfir mig úr verkjum á eldhúsgólfinu heima og var rúntað með mig í sjúkrabíl á Selfoss þar sem mér var gefinn sprauta, skrifað uppá eitthvað lyf og ég sendur heim, eftir MIKLA bið.
Ég er búinn með Pakródín Forte pakkann sem ég átti... Hefði alveg eins getað hent þessum 40 töflum ofaní klósettið þar sem ég fann ekki dick fyrir því að þær væru að gera eitthvað.
Og, get this, læknirinn sem skoðaði mig á Slefossi sagði að ég ætti að hreyfa bakið til þess að þetta skánaði.....
.....HVERNIG Í FOKKANUM Á ÉG AÐ FARA AÐ ÞVÍ ÞEGAR ÉG GET VARLA HREYFT MIG ÚTAF SÁRSAUKA?
Henni datt samt ekki í hug að skrifa uppá neinar pillur eins og Parkódín Forte nema sterkara, svona sem ég get tekið þegar mér líður extra illa, í bland við hinar pillurnar...
Ég fatta þetta system ekki... ...eru lyfin sem læknar skrifa út tekin útúr launagreiðslunum þeirra og skrifa þau þá væntanlega bara út það bráð nauðsynlegasta og ódýrasta eins og einhverjar helvítis Paracetamol blöndur? Þetta er eins og þegar tómatsósu bréfin á KFC hérna á Selfossi voru sett fyrir aftan búðarborðið... Þannig að maður gat ekki tekið sér 14 bréf, 4 til að nota núna, 10 til að fara með heim í safnið...
Látið ekki eins og kassi af 100.000 tómatsósu bréfum kosti ekki 10.000 kall..... og hvað er 10.000 deilt á 100.000? 0,1.... Þannig að hvert bréf kostar þá væntanlega 0,1 krónu... Einn aur... Og það er verið að nýskast með það...
En svo sáu KFC á Selfossi, eventually, að ég hafði flutt frá Selfossi aftur heim og þá settu þau tómatsósu bréfin aftur uppá borð. Að tómatsósu þjófurinn sem var kominn með 800 tómatsósu bréf í ísskápinn hjá sér væri ekki lengur að stela tómatsósu frá þeim uppá dag.
Ég skil það alveg að það séu til alveg 100+ klst efni úr öryggismyndavélum af mér að stela mér lúkufylli af tómatsósu bréfum á KFC.... ....en er einhver saga af því að ég hafi verið að stunda það að feika meiðsl til þess að fá sterk verkjalyf? Ef það er þessvegna sem þau vilja ekki skrifa uppá eitthvað stekrt fyrir mig?
Ég er ekki einhver læknadópisti sem er að reyna að scam'a út verkjalyf með því að ljúga til um fokking meiðsli... Ég er ekki að sækjast eftir vímu hérna, ég vil bara eitthvað sem drepur þennann sársauka svo ég geti lifað venjulegu lífi.
Ég hata reyndar vímu... Ég þoli fátt jafn lítið og að vera í áfengis eða kannabis vímu. Mér finnst það ógéðslegt. Þegar ég asnaðist til þess að reykja kannabis hérna áður fyrr nokkrum sinnum í mánuði, þá fékk ég mér 2-3 púff af jónu og um leið og ég byrjaði að finna fyrir áhrifum, þá hugsaði ég "Oh god, not this again... Afhverju var ég að gera þetta?"
Og hugsaði þetta bara þangað til það rann af mér aftur(Og ég var búinn að tæma tankinn sem er af einhverjum ástæðum 4000x betra á kannabis heldur en edrú).
En þegar ég spurði hjúkrunarkonuna sem sprautaði mig með Voltaren á sjúkrahúsinu hvort það væri nokkuð víma sem fylgdi þessu lyfi hefur hún örugglega misskilið það sem að ég vildi vímuna. Hún hefur sagt hinum hjúkrunarkonunum og læknunum hvað ég spurði og allir hafa fengið það í hugann að ég hafi verið að reyna að scam'a verkjalyf útúr þeim með þessu athæfi mínu að hringja á sjúkrabíl til þess að keyra mig á næsta sjúkrahús útaf þessu ímyndaða bílslysi sem ég lenti í viku áður.
Hvað er samt málið með þetta Paracetamol/Paratabs fetish okkar Íslendinga? Mér er sagt að taka þennann viðbjóð þegar ég er með höfuðverk en ekkert slær þetta samt á verkinn. Þessu er blandað saman við Codeine, annars fínasta lyf, og kallað Parkódín og manni sagt að þetta sé alveg hardcore shit... En svo gerir þetta ekki svo mikið sem dæld á verkina. Tók, eina nóttina, 8x Parkódín töflur, tvær í einu með hálftíma á milli, og ekkert gerðist... Þar sem Parkódín Forte er 500 mg Paracetamol og 30 mg Codeine, þá hef ég tekið þarna.... erhm.... 240 mg af Codeine þegar hámarksskamtur gegn sársauka eru 360 mg. Ég hefði átt að vera fljúgandi á skýjunum eftir þessar átta pillur en NNNNeeeeeeeEEEEEEeeeeiiiiiiijjjj, mér leið alveg jafn illa og áður... Ég fer að hallast á það að Paracetamol'ið sé þarna til þess að dempa Codeine'ið á einhvern hátt. Að Codeine'ið gefi ekki jafn mikil áhrif og það ætti að gefa ef Paracetamol væri ekki troðið þarna með.
Not to mention hve fokking hættulegt þetta Paracetamol er... Það rústar í þér líffærunum, öllu frá hjartanu að nýrunum. Svo er mér sagt að ég megi ekki taka meira en 8 Parkódín Forte á dag... Maður skyldi halda að það væri til þess að overdose'a ekki á Codeine'inu, en neeeeeeeeeeeeeeeiiiiiij, það er svo þú drepir þig ekki á Paracetamol'inu... HVÍ ÞÁ AÐ SETJA ÞENNANN VIÐBJÓÐ MEÐ CODEINE'INU?
Og þar sem ein tafla af Parkódín Forte er 500/30 þá hef ég væntanlega tekið þarna 4 grömm af stórhættulega lifrarbananum Paracetamol. Why? Oh, Why?
Svo má maður ekki taka nema X mikið af þessum og þessum pillum saman og alls ekki þessar og þessar pillur, því, akkúrat því þá fengi maður svo mikið af Paracetamol í líkamann á manni sem myndi bara valda meiri skaða síðar. Þessvegna sé ég ekki og skil ekki þetta Paracetamol fetish okkar Íslendinga. Þetta er tilgangslaust lyf sem hefði aldrei átt að vera fundið upp....
Hvernig væri að láta mann bara fá venjulegt Codeine and call it a day? Ekkert extra Para-neitt? Það er eins með Ibucod... Það er bara Ibufen og Codeine blandað saman... Hvernig væri að sleppa því að blanda hardcore lyfjum við viðbjóðsleg OTC lyf sem ekkert mál er að overdose'a á og láta mann bara fá kassa af 30 mg pillum af hreinu Codeine'i?
Er það svo fokkings flókið?
Er farinn að hallast á einhverjar dópista leiðir sem ónefndur aðili tjáði mér um daginn..... Að aðskilja Paracetamol'ið og Codeine'ið og fá mér bara hreint Codeine í stað þess að taka lifrarbanann með.... Frekar verð ég háður heldur en að líða útaf úr sársauka eða að lifrin í mér skjóti sig í hausinn útaf öllu álaginu sem Paracetamol'ið leggur á hana. .....En ég hef ekki alveg þolinmælðina í það ef ég verð að segja eins og er...
Allavegana, this rant was brought to you by
Codeine:
Life on
Codeine:

Life without
Codeine:

........We're just saying; If it were a choice, we bet you'd take that first one....
Codeine!.....Djók....
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...