
Vantar ekki einhverjum miða?
GunZi skrifaði:Hefði verið skynsamlegra að gefa smá afslátt... einfaldara að kaupa sinn eigin miða á sama verði.
lukkuláki skrifaði:Ef þetta er ekki einhver gjafamiði þá er hann ekki glataður þó þú hafir ekki notað hann.
þú átt að geta fairið með hann og fengið nýjan miða.
DoofuZ skrifaði:Því miður þá var þetta bara venjulegur miði sem ég keypti á midi.is. En ég tapaði svosem ekki miklu á þessu, svo ég er bara góður
lukkuláki skrifaði:Þú notaðir ekki miðann þannig að þú óskar bara eftir endurgreiðslu. Ferð í bíóið og færð miðann endurgreiddan.
kvikmyndahús og leikhús sjá sjálf alfarið um endurgreiðslur á miðum á þá atburði sem eru í þeirra húsum.
https://midi.is/hjalp
Eftir að þú hefur keypt miða hjá midi.is, í gegnum veraldarvefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá midi.is, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu eða rétt til þess að skipta miðanum fyrir annan viðburð, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.