Sælir
Ég var að versla mér 4K sjónvarp, engin sérstök ástæða fyrir því að ég fór í 4K fyrir utan það að öll betri tæki koma þannig í dag. Anyway, ég er með gamla turnvél sem ég nota til að horfa á Plex og RUV.is, hún er með 8800GT skjákort, tengt með DVI.
Málið er að ef að ég hef sjónvarpið í sambandi þegar ég kveiki á tölvunni þá stoppar hún eftir POST, áður en hún fer inn í Windows 10. Fer ekki lengra en það. Ef ég tek sjónvarpið úr sambandi þá klára hún að keyra upp Windows. Svo sting ég sjónvarpinu í samband. Til að fá mynd á tækið þarf ég svo að nota TeamViewer (enginn auka skjár) til að breyta upplausn úr 4K (sem win10 virðist defaulta í með sjónvarpið í sambandi) í 1920x1080. Þá kemur mynd á sjónvarpið.
Ég veit að dvi styður ekki hærri upplausn en 2560x1600. Og það virðist sem þegar sjónvarpið er í sambandi vill Windows fara beint í 4K 3840x2160. Þar sem dvi styður það ekki þá vill hún ekki klára bootið. En það er sama þótt ég breyti í 1080p, hún fer alltaf aftur í 4K þegar ég restarta...
Er engin leið til að fá Windows til að halda þessari upplausn inni sem ég hef valið, jafnvel þótt hún sé ekki native á sjónvarpið???
Vandræði með 4K sjónvarp
-
Axel Jóhann
- has spoken...
- Póstar: 152
- Skráði sig: Fim 24. Mar 2011 15:02
- Reputation: 4
- Staða: Ótengdur
Re: Vandræði með 4K sjónvarp
Er ekki bara málið að fá sér skjákort með HDMI tengi sem styður 4k?
Ryzen 7 1800x | Gigbyte Gaming AB350 | 32GB Corsair DDR 4 | Rog strx 2080 Super 8gb | 1tb SSD | 2Tb Hdd |
-
bjornvil
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 364
- Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 00:10
- Reputation: 25
- Staða: Ótengdur
Re: Vandræði með 4K sjónvarp
Axel Jóhann skrifaði:Er ekki bara málið að fá sér skjákort með HDMI tengi sem styður 4k?
Jú auðvitað væri það málið. Það er nú á óskalistanum að uppfæra þessa tölvu... En þetta sjónvarp kláraði budgetinn í bili. Ekki nema ég gæti keypt eitthvað notað á ca 5000 kall
-
Axel Jóhann
- has spoken...
- Póstar: 152
- Skráði sig: Fim 24. Mar 2011 15:02
- Reputation: 4
- Staða: Ótengdur
Re: Vandræði með 4K sjónvarp
Myndi halda að það væri besta lausnin, alltaf leiðinlegt að fá gamalt og nýtt dót til að fúnkera vel saman
Ryzen 7 1800x | Gigbyte Gaming AB350 | 32GB Corsair DDR 4 | Rog strx 2080 Super 8gb | 1tb SSD | 2Tb Hdd |
-
bjornvil
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 364
- Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 00:10
- Reputation: 25
- Staða: Ótengdur
Re: Vandræði með 4K sjónvarp
OK komst að því að það er nóg fyrir mig að kveikja á tölvunni og leyfa henni að boota upp windows áður en ég kveiki á sjónvarpinu, s.s. þarf ekki að taka sjónvarpið úr sambandi... Nógu gott þangað til ég uppfæri tölvuna 
-
worghal
- Kóngur
- Póstar: 6605
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 549
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Vandræði með 4K sjónvarp
en fyrst þú notar bara tölvuna fyrir plex, er þá ekki plex app í sjónvarpinu?
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
bjornvil
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 364
- Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 00:10
- Reputation: 25
- Staða: Ótengdur
Re: Vandræði með 4K sjónvarp
worghal skrifaði:en fyrst þú notar bara tölvuna fyrir plex, er þá ekki plex app í sjónvarpinu?
Nei virðist ekki vera komið á Firefox OS á Panasonic sjónvörp...