það er mjög leiðinlegt að þurfa að eyða 60 metrum af snúru efni til að tengja 2 tölvur.
ég lenti einmit í svipuðum hlut. mig vantaði 2 snúrur sem áttu að fara á sama stað og voru jafn langar, og ég átti ekki auka switch til að spara snúru efni.
ég fór að spá í hvernig væri hægt að leysa þetta. ég komst að því að það væri ekki sniðugt að setja 2 netkort í aðra vélina og bridge-a það, því þá myndi vera mjög mikið álag á þeirri tölvu ef tölvan sem færi gegnum hana þyrfti að senda/sækja mikið yfir netið.
en þá fékk ég þessa æðislegu hugmynd. AFHVERJU er ég bara að nota 2 pör í kappli sem er 4 pör..
ég klippti umþaðbil metra utanaf kaplinum á öðrum endanum og 5 centimetra á honum þannig að ég gat tekið sitthvor 2 pörin á báðum endum og sett 2 hausa. þannig að í heildina var kapallinn með 4 hausa

svona gerið þið þetta:

ef þið viljið bara fá "venjulegann" straight through kapal, þá gerið þið svona:
haus 1:
Pinni 1 : hvítur með gulri línu
Pinni 2 : gulur
Pinni 3 : hvítur með grænni línu
pinni 4 : ekkert
pinni 5 : ekkert
pinni 6 : grænn
pinni 7 : ekkert
pinni 8 : ekkert
haus 2:
Pinni 1 : hvítur með brúnni línu
Pinni 2 : brúnn
Pinni 3 : hvítur með blárri línu
pinni 4 : ekkert
pinni 5 : ekkert
pinni 6 : blár
pinni 7 : ekkert
pinni 8 : ekkert
svo gerið þið nákvæmlega eins á hinum endanum ásnúrunni

ef þið viljið fá snúru sem þið getið notað bæði sem straight through og crossover (þægilegt ef þið viljið getað notað sömu snúruna bæði í switch eða bara milli tveggja tölvna), þá þræðið þið annann endan eins og hérna fyrir ofan og hinn svona:
haus 1:
Pinni 1 : hvítur með gulri línu
Pinni 2 : gulur
Pinni 3 : hvítur með grænni línu
pinni 4 : ekkert
pinni 5 : ekkert
pinni 6 : grænn
pinni 7 : ekkert
pinni 8 : ekkert
haus 2:
Pinni 1 : hvítur með blárri línu
Pinni 2 : blár
Pinni 3 : hvítur með brúnni línu
pinni 4 : ekkert
pinni 5 : ekkert
pinni 6 : brúnn
pinni 7 : ekkert
pinni 8 : ekkert