Fyrst verð ég að játa að ég veit í hvaða hóp átti að láta þessa spurningu í - fann engan almennan hóp - þið megið endilega færa þetta til.
Vandamál mitt er að ég á stórt tónlistasafn á stafrænu formi og langar að geta nálgast það úr græjunum mínum. Hvaða lausnir eru til fyrir slíkt?
Ég hef heyrt um suma sem eru með xbox og breyta því þannig að það sé linux stýrikerfi á því og spila tónlist í gegnum það.
Hvaða aðrar sniðugar lausnir eru til?
Ef maður er með einhvern svona búnað hvernig getur maður fengið einhverja góða fjarstýringu á slíkan búnað?
Svo sá ég á http://www.ogvodafone.is/SubPage.aspx?GroupId=3402
AirPort Express - er það eitthvað sniðugt?
Hef heyrt um einhverja sem eru með snertiskjái innihjá sér þar sem hægt er að velja playlista til að spila - þessi snertiskjár er bara tengdur þráðlaust við einhverja mótðurölvu..þekkið eitthvað hvernig svona búnaður virkar?
Fullt af spurningum - vona að ég fái einhver svör eða url á góðar síður sem eru með fróðleik um svona mál.
Palm
Tengja tónlistaspilara við græjur
Hérna http://www.microsoft.com/windowsxp/medi ... fault.mspx
Það eru til óteljandi lausnir, ef þú vilt vera virkilega flottur á því þá voru Microsoft að gefa út Media Center 2005, ólíkt eldri útgáfum geta nú allir keypt það ef sjónvarpskortið þeirra styður það. Einnig sem það var gefið út MCE2005 viðbót fyrir XBox þar sem fólk stream-ar af borðtölvunni sinni yfir á Xboxið með þessu virkilega flotta Media Center GUI en við vitum auðvitað ekki hvað þú vilt eyða miklum pening

-
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 183
- Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Takk fyrir þetta - ég þarf að skoða þennan link.
Meðan ég er að skoða þetta þá vil ég skoða allt sama hvað það kostar bara til að sjá möguleikana sem eru í boði. Síðar mun ég örugglega vilja ákveða eitthvað limit til að miða við. Best væri nátturulega ef maður gæti mixað eitthvað sjálfur..
Hvernig virkar eiginlega fjarstýring með svona græju veistu það?
Ef þið vitið um fleiri lausnir endilega látið mig vita af þeim...einnig ef einhver ykkar er með einhverja svona lausn / mix endilega segja mér frá því.