Þú gætir náttúrulega prófað að taka upp hljóðið sem tölvan gefur frá sér, þannig kemstu framhjá hverju sem er, en ekki sjálfgefið að þessi aðferð virki hjá öllum.
Í stuttu máli, hægri smellir á Volume táknið neðst til hægri og velur Recording Devices og þar ætti að sjást "Stereo Mix", hægri smellir á það og velur Enable. Ef það sest ekki þá þarftu að hægri smella í þennan glugga og haka við "Show Disabled Devices". Þegar þetta er komið í gang þá ættirðu að geta tekið upp með t.d. Windows Sound Recorder, eða einhverju forriti eins og Audacity.
http://www.pcadvisor.co.uk/how-to/windo ... or-laptop/Ég prófaði þetta sjálfur, þurfti að fara í Playback Devices líka og hægri smella á "Speakers" og velja Properties > Levels > un-Mute'a Microphone og stilla í botn. Passa svo að hljóðstyrkurinn í Speakers væri stilltur í botn og þá gat ég tekið upp þennan FM95Blö straum í dúndurgæðum í Sound Recorder & Adobe Audition
