Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf Moldvarpan » Mán 12. Jan 2015 12:02

Góðan daginn.

Ég þarf að uppfæra hjá mér aflgjafann, ég virðist ekki vera finna neinn notaðann sem myndi henta mér.

Ég á soldið erfitt með að ákveða mig hvorn aflgjafann ég ætla að kaupa, er búinn að skoða soldið vel Tier uppsetninguna hjá þessum mönnum, og þeir setja CoolerMaster V aflgjafann í Tier 1 https://community.newegg.com/eggxpert/computer_hardware/f/135081/t/45344.aspx?pi5025=1

CoolerMaster V 700W Gold , á fínu verði hjá Tölvulistanum á ca 20k.
http://tl.is/product/cm-v-700w-gold-alveg-modular

Corsair RM550 Modular Gold, sömuleiðis á fínu verði hjá Tölvulistanum, ca 20k.
http://tl.is/product/rm550-modular-aflgjafi-80p-gold

Svo eru til aðeins ódýrari aflgjafar rétt eins og,

Zalman ZM600-GV 600W á ca 17k.
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=28_38&products_id=2707

Endilega deilið ykkar skoðunum :)

En aflgjafinn verður að vera stöðugur og helst hljóðlaus (ég HATA coil whine)




Yolo
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mán 05. Jan 2015 10:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf Yolo » Mán 12. Jan 2015 12:13

:megasmile
Síðast breytt af Yolo á Mán 12. Jan 2015 12:15, breytt samtals 1 sinni.




Yolo
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mán 05. Jan 2015 10:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf Yolo » Mán 12. Jan 2015 12:14

Þessi dugar handar þér 750W !! og ódyrt. keipti mér svona og það er buin að gangar vél hjá mér :)

>>> http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2634



Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Mán 12. Jan 2015 12:35

Yolo skrifaði:Þessi dugar handar þér 750W !! og ódyrt. keipti mér svona og það er buin að gangar vél hjá mér :)

>>> http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2634


Ég myndi alls ekki spara þegar það kemur að aflgjafa, þessir Inter Tech aflgjafar hafa ekki gott orðspor á sér hérna á vaktinni. Corsair aflgjafarnir hafa verið að koma mjög vel út, er sjálfur með 750w corsair aflgjafa sem ég er mjög ánægður með.



Skjámynd

Höfundur
Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2750
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 520
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf Moldvarpan » Mán 12. Jan 2015 12:38

Hvaða tegund af 750w Corsair ertu að nota? Og þá líka, þykir þér hann nægilega hljóðlátur?

Þessi tölva mun vera í gangi allan sólahringinn í svefnherberginu svo hann þarf að vera nokkkk silent :)



Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Mán 12. Jan 2015 12:57

Aflgjafinn sem ég á heitir Corsair CX750M, Ég heyri ekki í honum fyrir látunum í h100i örgjörva kælingunni minni hehe :D. Annars er hægt að fá silent aflgjafa frá Corsair sem slekkur á viftunni þegar tölvan er idle, man ómögulega hvað þeir heita í augnablikinu.

EDIT: Þeir heita Corsair RM, eins og þessi 550w sem þú linkaðir í, í upphafsinnlegginu.




KristinnK
Gúrú
Póstar: 583
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 111
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp! Veit ekki hvaða aflgjafa ég ætti að velja

Pósturaf KristinnK » Mán 12. Jan 2015 14:13

Ég myndi vara mig á ódýrari Corsair aflgjöfunum, allavega sögulega séð hafa þeir verið að selja frekar óvandaða aflgjafa í ódýrari línum sínum. Antec of Coolermaster eru með mjög góða middle-class aflgjafa, og Fortron oft líka. Vandamálið með Fortron er að þeir selja aflgjafa frá mjög mörgum ólíkum suppliers, flestir góðir, en sumir frekar lélegir.

En ég mæli með JonnyGuru, hann gerir mjög nákvæmar og vísindalegur mælingar á aflgjöfum í umskrifum sínum, ásamt því að skrúfa þá í sundur og skoða bæði hvernig gengið er frá lóðun og vírum, og hvernig transistorar eru notaðir í aflgjafann. Ef þú finnur umskrif þar um aflgjafa sem þú ert að hugsa um veistu strax nákvæmlega hversu góður hann raunverulega er.

Til dæmis fær 650 watta gerðin af Corsair RM sem þú varst að skoða aðeins 7/10 fyrir Build quality og 8/10 fyrir Value. Hins vegar fær Coolermaster V700 sem einhver stakk upp á 10/10 fyrir Build Quality. Því miður þá eru Corsair aflgjafar einum of dýrir miðað við keppinauta sína, sérstaklega þegar þú athugar það að 550W Corsair aflgjafinn er seldur á sama verði og 700W Coolermaster aflgjafinn, án þess að vera neitt betri með quantifiable hætti.


AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580