Lunesta skrifaði:RobertSaedal skrifaði:Fletch skrifaði:lenntuð þið í einhverjum vandræðum með tollinn eða er síminn CE merktur?
Ég pantaði frá Aliexpress mánuði síðan og Var stoppaður af tollinum útaf hann er ekki CE merktur.
So goodbye new phone.
bíddu ha. fékkstu ekki síman þá? Ef þú varst ekki að reyna að gabba tollinn skil ég ekki hvaða máli
skiptir hvort hann sé kínverska eða international versionið.
nei ég fékk ekki síman. Eins og ég sagði áðurn hér. Munurinn á kínverska og invite one er að þá á að vera auka tíðni svo hægt er að nota LTE í US og bakhliðin er með invite er með Cyenmod texta og logo og líka er CE merktur fyrir EU.
![Mynd](http://i1.wp.com/www.gizchina.com/wp-content/uploads/images/oneplus-one-sandstone-64gb-review-4.png)
Þetta er svarið sem ég fékk frá tollinum þegar síminn kom
"Góðan daginn Emil,
Síminn sem þú ert að fá er ekki CE merkt (þ.e. samkvæmt Evrópskum staðli) og er því ekki leyfileg samkvæmt reglugerð Innanríkisráðuneytisins frá 24. janúar 2007.
Þú getur nálgast frekari upplýsingar hér. Engar undanþágur eru veittar fyrir innflutningi á fjarskiptabúnaði sem ekki er CE merktur.
Ef óskað er nánari upplýsinga er vinsamlegast bent á að hafa samband við Póst- og fjarskiptastofnun,
pfs@pfs.is Um tvo valkosti er að ræða:
1.Láta tollinn farga bannvörunni og fá rest.
2.Endursenda alla sendinguna.
Endilega láttu okkur vita hvað þú vilt gera, einnig ertu velkomin til að skoða innihaldið nánar með tollinum."
Hef ekki hugmynd hvar þau fengu að nafnið mitt er Emil, því yfirleitt kallar fólk mig Róbert en so be it