Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð


Höfundur
Spookz
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Fim 10. Feb 2011 16:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf Spookz » Lau 18. Okt 2014 12:07

Ég keyrði með tölvuna mína til vinar míns til að lana, en svo reyndi ég að kveikja á henni og þá gerist bara ekki neitt. Veit einhver hvað gæti verið að?
Öll aðstoð mjög vel þeginn!



Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf Glazier » Lau 18. Okt 2014 12:19

Hljómar asnalega... en ertu alveg 100% viss um að þú hafir pottþétt ekki rekist í on/off takkann á aflgjafanum í flutningunum? :)


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3614
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 144
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf dori » Lau 18. Okt 2014 12:26

Ef það sem Glazier bendir á er í lagi þá myndi ég opna hana og tékka hvort eitthvað hafi aðeins færst til (minni, örgjörvakæling, skjákort) eða einhverjar snúrur lausar. Ef hlutirnir voru ekki settir alveg 100% saman (gerist alveg) þá geta þeir losnað við flutning eða slíkt.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4245
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1422
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf Klemmi » Lau 18. Okt 2014 12:27

Glazier skrifaði:Hljómar asnalega... en ertu alveg 100% viss um að þú hafir pottþétt ekki rekist í on/off takkann á aflgjafanum í flutningunum? :)


Checka á þessu auðvitað fyrst :)


Ef það er ekki málið, þá er þrennt sem ég myndi athuga fyrst:

1) Er 24-pin aflgjafatengið kyrfilega tengt í móðurborðið.

2) Er rástakkinn frá kassanum tengdur í móðurborðið.

3) Er eitthvað USB tengi beygt eða brotið (algengt að það leiði þá út og tölvan sýni engin viðbrögð í ræsingu).


Starfsmaður Tölvutækni.is

Skjámynd

jojoharalds
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1622
Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
Reputation: 298
Staðsetning: Cicada - 3301
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf jojoharalds » Lau 18. Okt 2014 14:14

SKoða þetta
Viðhengi
front-panel-headers.jpg
front-panel-headers.jpg (49.82 KiB) Skoðað 1780 sinnum


Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-5800X3d @ 4.5 Ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3800MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 1200W - GTX3080
Samsung 980pro 2Tb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb -- Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S


atlifreyrcarhartt
Ofur-Nörd
Póstar: 296
Skráði sig: Þri 04. Sep 2012 21:55
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf atlifreyrcarhartt » Lau 18. Okt 2014 20:53

vertu lika viss um að fjöltengið/instungan virki.


Gigabyte Z77X-UP7 / Intel i7 3770k / Corsair H100I / Coolermaster Haf 932 / Asus7970Matrix / Corsair 8GB 1600mhz / 4TB WD Geymsla / Logitech G500&G510&G27 && Asus ROG G53JW


Höfundur
Spookz
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Fim 10. Feb 2011 16:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf Spookz » Sun 19. Okt 2014 18:10

Þakka ábendinganar allir en ég er búinn að komast að því, eftir að ég mældi spennuna, að aflgjafinn sé gallaður. Þetta er örugglega í 7. eða 8. skipti eftir að ég keypti þessa tölvu frá Tölvutækni sem að ég þarf að fara með hana til þeirra vegna galla. Ég er ekki að reyna að koma slæmu orði á Tölvutækni en ég er persónulega búinn að vera í eintómu veseni með þessa tölvu frá þeim. :face



Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 11
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölva ræsir sig ekki eftir bílferð

Pósturaf Yawnk » Sun 19. Okt 2014 18:30

Spookz skrifaði:Þakka ábendinganar allir en ég er búinn að komast að því, eftir að ég mældi spennuna, að aflgjafinn sé gallaður. Þetta er örugglega í 7. eða 8. skipti eftir að ég keypti þessa tölvu frá Tölvutækni sem að ég þarf að fara með hana til þeirra vegna galla. Ég er ekki að reyna að koma slæmu orði á Tölvutækni en ég er persónulega búinn að vera í eintómu veseni með þessa tölvu frá þeim. :face

Haha lenti nú líka í svipuðu með aflgjafa úr tölvutek, hann fór þrisvar í röð hjá mér, alltaf var skipt um og sett sama tegund frá þeim aftur í ( thermaltake 730w smart rusl ), og um leið og var settur í önnur tegund af aflgjafa, þá hefur ekki verið neitt vesen síðan..