Vinur minn var að versla sér þessa fínu tölvu.
Hér eru specs fyrir ykkur:
-Asus NVIDIA GeForce GTX760 OC 2GB
-Intel Core i5-4690 3.5GHz, LGA1150, Quad-Core, 6MB cache, Retail
-MSI Z97 Gaming 5
-Corsair VEN 2x4GB 2133LP
-Corsair CX500M
-Seagate 3TB SATA3 6Gb HDD
-Antec P100 Performance One
En nú er hann búinn að setja þetta allt saman og búinn að fara vel og oft yfir alla kapla og tengi og þegar hann reynir fyrst að kveikja á gripnum slær út í herberginu.
Honum fannst þetta rosalega skrýtið og fór í stofuna, fór vel yfir alla kapla og reyndi aftur en þá sló allt húsið út.
Hann aftengir allt, tengir aftur og reynir en þá gerist bara ekki neitt.
Hvað getur verið í gangi ? Er þetta eitthvað í aflgjafanum eða er sveitabærinn sem hann býr í ekki að framleiða nóg rafmagn ?
Svo til að gera þennann þráð enþá skemmtilegri tók hann nokkrar myndir til að sýna
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Ég vona að þið snillingarnir getið komið með lausn á þessu
![Dancing \:D/](./images/smilies/eusa_dance.gif)
Ást og friður !