Vona að það sé ekki þegar umræða um þetta, amk sá ég ekki neina slíka.
Er búinn að vera að skoða á netinu ýmsa forums og einnig reiknivélar frá coinwarz, til að skoða hversu viable það er að búa til farm rig og fá einhverjar tekjur af því. Eins og komið er hef ég einungis séð að maður er amk eitt ár að enda í brake even.
Ef það er raunveruleikinn, er eitthvað vit í þessu? Erfiðleikastigið hækkar jafn óðum, auk þess sem búnaðurinn úreldist og allt það fram eftir götunum. Eru einhverjir hérna inni sem hafa einhverja reynslu af þessu, þ.e. eru komnir út í þetta sjálfir, og gætu kanski komið með einhverjar reynslusögur?

Ég ætla að taka það fram að ég er enginn sérfræðingur í þessu, en hef kanski einhverja grunnþekkingu þar sem ég er búinn að vera að kynna mér þetta í lengri tíma.
Aðal spurningin er þá væntanlega, er hægt að setja upp svona farming rig og láta það borga sig upp á þokkalegum tima, og láta það rig halda áfram að skila einhverjum arði? Kanski ágætt að taka það fram að ég er ekki að reikna með einhverjum risa upphæðum, heldur meira forvitni hvort að þetta geti skilað net gróða.
