Hringdu
"Við viljum vekja athygli á því að Síminn hyggst rukka fyrir allt gagnamagn, bæði innlent og erlent hvort sem það er upphal eða niðurhal frá september 2014. Viðskiptavinir Hringdu þurfa ekki að hafa áhyggjur af slíkum breytingum. Hjá okkur verður áfram einungis erlent niðurhal talið."
Hringiðan
Af gefnu tilefni viljum við hjá Hringiðunni benda á að engin plön eru til hjá okkur um að byrja að innheimta fyrir innlent niðurhal eða upphal.
365 miðlar
Innlent niðurhal er innifalið í internetþjónustu 365 og segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, enga breytingu verða þar á. „Slíkar breytingar eru ekki fyrirhugaðar hjá 365 miðlum og verður innlent niðurhal áfram innifalið í þjónustu okkar," segir Ari.