þó ég sé allveg gallharður AMD maður og minn 1090T hefur gengið einsog svissnesk úrverk undir miklu overclocki í mörg ár þá finnst mér single core performance ekki allveg nógu gott, er að spila mikið World of Tanks og þeir eru ekki búnir að græja hann fyrir multicore support svo hann gengur á einum kjarna, þá finnst mér hann ekki allveg nógu góður enda eru 5 kjarnar idle og einn í 100%.
en þeir leikir og forrit sem nýta 4-6 kjarna þá er ég mjög sáttur við hann, auk þess sem öll vinnsla í windows er rosa snappy og fín.
Ég keypti hann þegar hann var nýr og þá voru Intel mjög dýrir svo dálitlu seinna komu þeir með verðlækkun sem gerði svipaða intel örgjörva svipaða í verði.
Ef ég væri að fara endurnýja núna, bæði móðurborð og CPU þá þyrfti ég að hugsa mig smá um, 6-8 kjarna örgjörvar eru ekki orðnir allveg jafn vinsælir eins og maður bjóst við og því færi ég líklega í öflugan 4 kjarna örgjörva, sennilega i7
Ég hef bara svo gaman að AMD því þeir halda intel í skefjum, þeir bjóða uppá bang for the buck CPU á mun lægra verði en intel og þá skyndilega kemur óútskýrð verðlækkun hjá intel
Mér finnst stundum intel minna mig á Apple og ég vil ekki hugsa útí það ef þeir væru einu CPU framleiðendurinir fyrir desktop og laptop CPU, þær væru líklega ansi dýrir.
Búinn að nota AMD í fjölda mörg ár og meðal annars vél frá 2004 hér heima sem ég nota sem torrent vél og hún hefur gengið eins og klukka síðan 2004
*Edit: svo eru náttúrlega console vélarnar komnar með 8 core AMD cpu, kannski gætu þá 6-8 core AMP cpu í PC vélum staðið sig vel þegar fyrirtæki fara að porta PS4 leiki yfir á PC, ég veit það ekki...