Hvað er SAVE upp a framtíðina.


Höfundur
Aimar
/dev/null
Póstar: 1435
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Reputation: 36
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Hvað er SAVE upp a framtíðina.

Pósturaf Aimar » Mið 01. Sep 2004 16:50

Ég er að pæla í uppfærslu á móðurborð og örgjörva.

Mig langar til að vita hvað er best upp á framtíðina.

Á maður að hugsa um 64bita örgjörva útaf longhorn eða er það nokkur ár ennþá í það windows kerfi?

endilega upplýsið mig.



Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Mið 01. Sep 2004 16:54

Það eru nokkur ár í Longhorn ennþá....og sama hvað þú færð þér mun það ALLTAF vera úrelt eftir smá tíma..sry




Höfundur
Aimar
/dev/null
Póstar: 1435
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Reputation: 36
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Pósturaf Aimar » Mið 01. Sep 2004 16:59

pentium 4?

amd?

amd64?

tölva í leiki, dvd rip, afpökkun, tv encoding. og fl.

hvað leggja menn til.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1816
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 87
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Mið 01. Sep 2004 17:00

útgáfudagur á MS longhorn er seint 2006, ætla að reyna að gefa út á sama tíma og Microsoft á 20 ára áfmæli

sambandið við framtíðina. þá myndi ég kaupa góðan skjá skjár getur fylgt þér í gegnum margar uppfærslur.

að kaupa góðan og rúmgóðan kassa getur líka verið góð fjárfesting. en ég myndi ekkert mæla mikið með því núna BTX að fara að ryðja sér leið.

móðurborð/örgjörvi/vinnsluminni og skjákort er orðið úrelt nokkrum mánuðum eftir þú kaupir það nýtt. myndi ekkert vera að pæla í að kaupa það nýjasta og dýrasta heldur bara það sem þú telur að muni næja þér. svo kaupa sér nýtt eftir 9-18 mánuði.




Höfundur
Aimar
/dev/null
Póstar: 1435
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Reputation: 36
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Pósturaf Aimar » Mið 01. Sep 2004 17:09

am skil. hvort er p4 eða p4 (775) betra? er að skoða verðin á vaktinni. og hvort myndi hennta betur i´þessa tölvu?

eða er amd xp 400 alveg jafn gott (er eitthvað ódýrara)?
eða á maður að fara í 64 bita örrann hja amd? er nokkuð hægt að nýta sér 64bita tæknina núna eða á næstu mánuðum?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mið 01. Sep 2004 20:46

hef litlu við að bæta nema að "safe" = "öruggt/öryggi", save = "bjarga(/vista)" :)




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 01. Sep 2004 21:23

Aimar skrifaði:am skil. hvort er p4 eða p4 (775) betra? er að skoða verðin á vaktinni. og hvort myndi hennta betur i´þessa tölvu?

eða er amd xp 400 alveg jafn gott (er eitthvað ódýrara)?
eða á maður að fara í 64 bita örrann hja amd? er nokkuð hægt að nýta sér 64bita tæknina núna eða á næstu mánuðum?

Þú getur nátturlega notað linux eða Windows 64 bita betuna. Veit reyndar ekki hvort fólk er að græða nokkuð á þessum 64 bita örgjörvum enþá.




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 02. Sep 2004 10:50

Sæll Aimar, það er alltaf góð spurning með hvað sé gott upp á framtíðina, 64-bit eða ekki osfv.

Í Linux eru menn vel settir þar sem þeir þurfa bara að endurþýða forritin og bingó! Þar eru menn almennt að fá 5-15% hraðaaukningu sem er alveg ásættanlegt, þau forrit sem hafa verið skrifuð upp á nýtt eru stundum að gefa 30-50% meiri afköstum. Þetta er mismunandi eftir forritum, í leikjum hefur ekki sést nein markverð afkastaaukning en í hljóð-, þrívíddar- og mynd-vinnslu eru menn að sjá mesta hraðaaukningu.

Að mínu mati eru kaup á AthlonXP og Pentium4 örgjörvum skammsýni í besta falli, ef ég væri sjálfur að fara í uppærslu þá væri bara einn valkostur til staðar þangað til að við fáum að sjá 64-bita útfærsluna frá Intel, persónulega myndi ég bíða þar til að S939 er kominn á sæmilega hagstætt verðbil, en ég er líka sparsamur að eðlisfari. Í augnablikinu eru A64 örgjörvarnir ódýrari en samsvarandi P4 svo um munar, og afkasta miklu betur en svipað merktir XP örgjörvar.

Ef menn vilja kaupa Intel af einhverri annari ástæðu (margir álíta þá öruggari, sérstaklega í sambandi við kubbasett) þá er S775 eina sem vit er í, ekki það að þeir gefi betri afköst (þeir eru varla að skila jafn góðum afköstum á köflum) heldur er það upp á að geta uppfært í framtíðinni.

Vona að þetta hjálpi.




Höfundur
Aimar
/dev/null
Póstar: 1435
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Reputation: 36
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Pósturaf Aimar » Fös 03. Sep 2004 22:31

takk þetta hjálpar mikið.
Eitt í viðbót, hvaða forrit ætti ég að nota til að mæla getu tölvunnar? Eitthvað sem mælir tölvuna í heild sinni.
ps. er til eitthvað sem mælir allt nema skjákortið (er með lélegt :8) )




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Lau 04. Sep 2004 01:43

Það er að mínu viti ekki til nógu alhliða benchmark til að mæla afköst tölvu undir öllum kringumstæðum, síðan er hægt að skrifa kóða sérstaklega fyrir ákveðinn örgjörva, skjáhraðal eða jafnvel kubbasett, þ.a. á endanum er það í raun þau forrit sem þú notar mest sem gefa markverðustu myndina af afköstum tölvunar.




Höfundur
Aimar
/dev/null
Póstar: 1435
Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
Reputation: 36
Staðsetning: 201
Staða: Ótengdur

Pósturaf Aimar » Lau 04. Sep 2004 03:29

en er ekki eitthvað forrit sem þið notið til að metast um tölvurnar ykkar :8)
Allavegana sumir hérna :?:



Skjámynd

Lazylue
Nörd
Póstar: 124
Skráði sig: Þri 01. Júl 2003 23:16
Reputation: 0
Staðsetning: veitekki
Staða: Ótengdur

Pósturaf Lazylue » Lau 04. Sep 2004 11:54

Getur reynt Pc mark held það notist aðalega við cpu og ram.




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Sun 05. Sep 2004 18:54

PCmark04 er að miklu leyti hannað fyrir örgjörva með hyper-threading, aðrir örgjörvar, prescott kemur betur út úr þessu prófi en northwood enda er prescott með endurbættu hyper-threading.

Ennfremur koma yfirklukkaðir Celeron örgjörvar vel út sem bendir til þess að hreinn klukkuhraði hafi mikil áhrif eða, eins og Anandtech bendir á að harð-drifs afköst spili stórt hlutverk og þar sem Celeron og P4 eru prófaðir á sama móðurborði séu niðurstöðunar litaðar af því.