Vill svo til að fyrir nærri 3 árum fór ég að heyra raddir. ég drekk stundum til að gera mig kærulausan, en þá verð ég oft bara verri. því miður og fæ svona köst eins og um daginn. :/ .. fyrst var allt í rugli og eina sem ég heyrði var bara "ég er jörðin" ég er hinn og þessi blabla bla. sem er ekki frásögum færandi nema að ég fór að labba uppá fjöll til að fara í fótabað og allskyns rugli. ég missti málið í 3 mánuði og var með svona gúbbífiskaminni, gat ekki hugsað nema í nokkrar sekúndur og svo datt ég aftur á sama stað. ætlaði vel og lengi bara að henda mér framaf húsþaki en ég vildi ekki detta í gegnum víddir og lenda einhverstaðar útá ballarhafi og drukkna í staðinn.
því lengra sem leið á tíman fór ég að greina betur á milli raddana og fór að læra allskyns nýja hluti. þetta með "ég er jörðin" var líkaminn minn að segja mér að allt sem ég er "er af jörðu gert" svo ég er jörðin í sinni lifandi mynd. raðað saman í manneskju en jörðin engu síður.. það seinna sem ég lærði var að Jesú er sólin sjálf. hann reis uppá 3ja degi er bara sólstöður.. hún hvorki hækkar né lækkar í 3 daga og "rís svo upp frá dauðum" ..þessi kóróna hans úr þyrnum er sólgeislarnir og að hann gangi á vatni er SPEGILMYND SÓLARINNAR ! ..ekki maður að ganga á vatni ! gáfnaljósin ykkar. og að lækna blinda "er sólinn að koma upp eftir blindanótt. svo þá er jésus kominn á hreint. á sínu réttu nafni er Jesús = jeg sun... og btw þá er sól á afturábak lós sem er óvenju nálægt því að vera "ljós er það ekki ?
Adam og Eve á ensku er "Atóm og Líf... "í upphafi skapaði guð Atóm og Líf ! " ekki 2 manneskur á jörðu sém hétu Adam og Eve! og skilningstréð er heilinn "það má ekki borða heilann" mænan er rótin og heilinn er "skilningstréð"
Ég veit hví Vincent Van Gogh skar af sér vinstra eyrað.. því við heyrum íllar raddir vinstra megin og góðar í því hægra... og ég er með stanslaust hátíðnihljóð í höfðinu.. eins og að vera fyrir framan gamalt sjónvarp með svona "snjómynd" ..og sjóntaugarnar mynar eru upplýstar einhvernveginn af straumi !.. ég sé ekki lengur myrkur þó svo ég feli mig í niðamyrkri.. sem er mjög vont..
þetta hátínihljóð er það sem Edvard Munch gerði skiljanlegt í málverkinu "The Scream" eða "ópið" og ég hef öskrað úr mér allann mátt og barið mig oft í hausinn að reyna ná þessu burt.. gerir bara verra.
Ég labbaði framhjá Ráðhúsinu og orðin röðuðust sem "húðsár" í höfðinu á mér.. og þetta sem ég skrifaði á pistilinn hérna um daginn veit ég ekki hvað var :/
Ég biðst allavega asökunar á þessu brjálæði mínu um daginn.. og mig langaði bara aðeins að deila þessu með ykkur.
