Hvert er pointið með þessu? Þarf maður ekki að standast eitthvað hæfnispróf eða eitthvað til þess að komast í lið? Sé enga ástæðu til að troða stelpum í liðin ef að þau geta ekki komið sér þangað sjálfar.

hakkarin skrifaði:http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/09/19/kynjakvoti_i_gettu_betur/
Hvert er pointið með þessu? Þarf maður ekki að standast eitthvað hæfnispróf eða eitthvað til þess að komast í lið? Sé enga ástæðu til að troða stelpum í liðin ef að þau geta ekki komið sér þangað sjálfar.
cartman skrifaði:Mér finnst þetta frekar skrítið.
Afhverju að stoppa þarna... Afhverju ekki setja kröfu um að stelpur verði að svara amk 50% af öllum hraðaspurningum.
Stelpurnar þurfa að ýta á bjölluna í amk 50% tilvika.
Væri þá ekki nær að hafa sér stelpukeppni og sér strákakeppni?
Það var þannig í mínum skóla líka að það voru nánast bara strákar sem tóku prófið
tdog skrifaði:Frekar en kynjakvóta, að breyta hreinlega reglunum og auka fjölda keppenda frá hverjum skóla í 4 og tvo sæti ætluð stelpum og tvo sæti ætluð strákum.
Sallarólegur skrifaði:Það er einfaldlega verið að hvetja stelpur til þess að taka þátt.
Stelpur vita ekki hvað þær vilja. Þessvegna þurfa þær sérstaka hvatningu til að skrá sig í þessa keppni. Já, einmitt! Hversvegna ætti klár stelpa frekar að vilja mæta á kóræfingar á kvöldin, verja helgunum með vinum sínum eða lesa undir próf? Hver trúir því í alvöru að hún sjái meiri tilgang í því að lesa eitthvað í samhengi, sjálfri sér til ánægju, en að læra smásmugulegar staðreyndir utan að og þjálfa sig í að ryðja þeim út úr sér á ógnarhraða?
Það viðhorf að gildismat kvenna sé gallað, og þessvegna þurfi að stýra þeim inn á réttar brautir, er ekki bundið við unglinga. Það þykir t.d. merki um kynjamisrétti hve fáar menntakonur sækjast eftir frama innan vísindasamfélagsins. Það er ekki snjöll ákvörðun að ráða sig í vel launað starf í einkageiranum heldur hljóta konur að eiga erfitt uppdráttar í háskólasamfélaginu. Það hlýtur að vera svo ógurlega merkilegt að geta sér nafn innan akademíunnar að það er útilokað að menntaðar konur sjái hagsmunum sínum betur borgið annarsstaðar.
Ég sé ekkert dapurlegt við það að vilja ekki fórna öllum frítíma sínum í marga mánuði fyrir fimmtán mínútna frægð og vert væri að spyrja hvaðan sú hugmynd er sprottin að stúlkur séu ekki einfærar um að ákveða hvað þeim finnist eftirsóknarvert. Af hverju halda feministar slíkri tryggð við það sem þeir kalla [ranglega] “feðraveldi”. Af hverju vilja þeir yfirtaka “feðraveldið”; taka sjálfir að sér að stjórna stelpum? Af hverju ekki bara láta stelpur í friði eða jafnvel stuðla að því að þeirra eigin menning fái meira vægi í fjölmiðlum?
rapport skrifaði:tdog skrifaði:Frekar en kynjakvóta, að breyta hreinlega reglunum og auka fjölda keppenda frá hverjum skóla í 4 og tvo sæti ætluð stelpum og tvo sæti ætluð strákum.
Það væri líka kynjakvóti...
Stutturdreki skrifaði:Eh, ef það er skóli einhverstaðar þar sem enga stelpu langar yfir höfuð að taka þátt í þessari keppni, hvað á sá skóli að gera?