atlifreyrcarhartt skrifaði:Skv. Frumherja er bíllin skoðaður 2014... hvernig fáið þið það út að hann sé með boðun i skoðun.. lesa fyst og geyma brandarana þar til að lestri loknum

Þó að bíllinn er skráður í næstu aðalskoðun árið 2014, þýðir ekki að hann sé ekki með boðun í skoðun. Þú verður að hafa aðgang að ökutækjaskrá til þess að sjá boðun í skoðun á ökutæki, það er ekki nóg að fletta bílnum upp á us.is.
Það sem gerist er að það kemur færsla í skoðunaryfirlit bílsins þar sem tegund skoðunar er "Boðun í skoðun" og skráður skoðunarmaður er lögregla þess embættis sem boðaði þig í skoðun. Að þessari viku lokinni sem þú hefur til þess að fara með bílinn í skoðun byrjar að koma vanrækslugjald (sekt) sem sést undir liðnum Áhvílandi gjöld í ökutækjaskrá. Þessa sekt mun þurfa að greiða áður en bíllinn fer næst í skoðun. Ef þú nærð að þrauka til skoðunardags árið 2014 án þess að það verður klippt af bílnum, verður sektin eflaust orðin himin há og það verður rándýrt að fara með hann í aðalskoðunina. Ég þekki það þó ekki 100% hvort sektin hækkar með tímanum eða hvort hún nær bara einni upphæð og verður þar.
Þar að auki, á meðan bíllinn er með boðun í skoðun, getur þú misst bótarétt í slysi þrátt fyrir að vera í rétti, enda setur lögregla ekki boðun í skoðun á bíla nema hún telji bílinn ógna umferðaröryggi og því á að lagfæra það um leið.
Allan tíman stendur að næsta skoðun sé árið 2014 á
www.us.is.
Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x