Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Skjámynd

Höfundur
Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1585
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 63
Staða: Ótengdur

Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Xovius » Mán 13. Maí 2013 17:42

http://www.ebay.com/bhp/yamakasi-catlea ... CF0746246B

2560*1440, yfirklukkast flestir uppí 120hz og sumir jafnvel uppí 144hz, 27".

Mynd




Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Arkidas » Mán 13. Maí 2013 17:51

Búinn að eiga 2 Shimian skjái síðan í September. Mjög fínir.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6855
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 962
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Viktor » Mán 13. Maí 2013 17:52

Ansi leiðinleg mynd þarna, en ég leyfi mér að efast um ágæti þessa skjás.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Baraoli
Geek
Póstar: 806
Skráði sig: Lau 04. Jún 2011 18:09
Reputation: 14
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Baraoli » Mán 13. Maí 2013 18:54

Xovius skrifaði:http://www.ebay.com/bhp/yamakasi-catleap-q270;jsessionid=FA30DA12FDC904F41F4F0DCF0746246B

2560*1440, yfirklukkast flestir uppí 120hz og sumir jafnvel uppí 144hz, 27".


Þetta yamakasi merki stingur í augun hvað það er stórt ljót og áberandi.
Annars myndi ég aldrei treysta svona noname dæmi en það er kanski bara ég :baby




Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Arkidas » Mán 13. Maí 2013 20:56

Merkið skiptir engu máli. Þetta er sami panell og í Apple Thunderbolt skjáunum. En A- panell þó, ekki A+.
Skjáirnir eru niðurgreiddir af kóreska ríkinu og hafa litla / ljóta yfirbyggingu og eru þess vegna ódýrir.

Mér skilst að Kísildalur sé að fara að nota þessi panel til þess að bjóða upp á svona skjái með ábyrgð á Íslandi
(þeir sögðu mér það núna um síðustu jól, veit ekki hvernig þetta hefur þróast).



Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2277
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Reputation: 20
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Plushy » Mán 13. Maí 2013 20:59

Finnst þetta flottir skjáir bara, Yamakasi merkið fer ekkert fyrir augun á mér frekar en BenQ/Acer/Samsung.

Ef þetta væri í boði í einhverri búð á íslandi á þessu verði myndi ég kaupa eitt stk :)



Skjámynd

Frosinn
has spoken...
Póstar: 188
Skráði sig: Mið 13. Jan 2010 19:33
Reputation: 1
Staðsetning: Eyrarbakki
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Frosinn » Mán 13. Maí 2013 21:08

Þessir skjáir eru vissulega ódýrir. Þeir skjáir sem eru á góða verðinu ($248) eru bara með DVI-D (sumsé ekki með display-port eða HDMI). Standard eru skjáirnir 60hz, en hægt er að kaupa spjald í það sem keyrir þá upp í 125hz (kostar $40).

Ég er búinn að skoða þessa skjái töluvert fyrir fjársterkan aðila hérlendis sem hugði á innflutning. Var í viðræðum við verksmiðjurnar úti í S-Kóreu og alles. En hætt var við kaup á 20 feta gámi af þessum skjám þar sem gæði IPS í skjánum er A mínus, og þeir afhendast með allt að 4 dauðum pixlum. Ekki hentugt fyrir kröfuharða Íslendinga.


CASE: CoolerMaster HAF 922 | PSU: Zalman ZM-1000HP | MOBO: Asus P9X79 Deluxe | CPU: Intel 3930K@3.2GHz | SINK: Stock | RAM: 64GB (8xCrusial 8GB DDR3 1600MHz) | SSD: 720GB (RunCore 480GB; Mushkin MKNSSDCR120GB; OCZ AGT3-25SAT3-120G) | HDD: 24TB (8xSeagate ST3000DM0013) | GPU: Radeon R9 270 | DISP: 2 x Dell 30" (3008WFP)

Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf MuGGz » Mán 13. Maí 2013 21:10

Væri ekki leiðinlegt að eiga 2560x1440 120hz skjá

Þú getur keypt þá pixel perfect, hversu vel það stenst er spurning




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 173
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf AntiTrust » Mán 13. Maí 2013 21:11

2-4 dauðir pixlar eru líka yfirleitt nóg til útskipta ef ég man rétt, lagalega séð - fer þó eftir staðsetningu á pixlunum. En synd, ótrúlega pirrandi að maður þurfi að punga út 100k fyrir hærra res en 1080p.



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf MuGGz » Mán 13. Maí 2013 21:12

Sé samt stóran kost t.d. fyrir mig að losna við HDMI tengið þar sem ég nota bara DVI

Munar HELLING í innflutningi vegna tolla!



Skjámynd

Frosinn
has spoken...
Póstar: 188
Skráði sig: Mið 13. Jan 2010 19:33
Reputation: 1
Staðsetning: Eyrarbakki
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Frosinn » Mán 13. Maí 2013 21:13

Til að fá pixel perfect skjá þarftu að versla slíkan af einhverjum sem er búinn að taka skjá og prófa hann. Þarft að jafnaði að borga 100-150 USD fyrir slíkt (kóreskir námsmenn gera þetta t.d.) og þá er nú mest af sparnaðnum farinn.

Og verksmiðja Yamakasi skiptir ekki út nema það séu 5 dauðir pixlar eða meira.


CASE: CoolerMaster HAF 922 | PSU: Zalman ZM-1000HP | MOBO: Asus P9X79 Deluxe | CPU: Intel 3930K@3.2GHz | SINK: Stock | RAM: 64GB (8xCrusial 8GB DDR3 1600MHz) | SSD: 720GB (RunCore 480GB; Mushkin MKNSSDCR120GB; OCZ AGT3-25SAT3-120G) | HDD: 24TB (8xSeagate ST3000DM0013) | GPU: Radeon R9 270 | DISP: 2 x Dell 30" (3008WFP)

Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf MuGGz » Mán 13. Maí 2013 21:15

BenQ eru komnir með 27" 120hz skjá sem mun kostar í kringum 100kallinn hér heima

Enn það er eingöngu 1080p skjár



Skjámynd

Maniax
Ofur-Nörd
Póstar: 231
Skráði sig: Þri 24. Júl 2012 14:59
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Maniax » Mán 13. Maí 2013 21:15

er með Pixel Perfect Yamakasi skjá og er það besti skjár sem ég hef átt, Eini gallinn er að hann spilar ekki HDCP varið efni í gegnum HDMI



Skjámynd

hjalti8
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 353
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:03
Reputation: 16
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf hjalti8 » Mán 13. Maí 2013 21:23

var akkúrat að fá eitt stykki catleap 2703 heim í dag. Ég keypti pixel perfect útgáfu(max 1 svartur pixill) og hann kostaði 67k með öllum gjöldum : http://www.ebay.com/itm/130898742378?ss ... 1497.l2649

Það var svo einn dauður pixill upp í hægra horni en annars er skjárinn nánast perfect. Basicly ómögulegt að koma auga á þennan pixil nema með því að grandskoða skjáinn með hvítum bakgrunn.
Við fyrstu sín virðist vera töluvert betri contrast heldur en á gamla Dell U2311H(e-IPS panel) skjánum mínum, en það er sennilega vegna þess að fjólubláa IPS glow-ið fór rosalega í taugarnar á mér.
Það er samt ips glow á þessum S-IPS panelum en það er hvítt/silfrað en ekki fjólublátt, ég hef ekki ennþá tekið eftir því þar sem það er ennþá mjög bjart í herberginu mínu(glataðar gardínur) svo ég get heldur ekki ennþá kommentað á backlight bleeding(hef amk ekki tekið eftir neinu í björtu herbergi).
Svo tók ég frekar glossy skjá þó svo að það sé frekar slæm speglun þá er ekki sniðugt að hafa grófa matta filmu þegar þú ert kominn með svona fína upplausn. Ég sé ekki eftir því.

Þetta er ekkert æðislegt build quality hjá yamakasi en 2560x1440 LG S-IPS panellinn er það æðislegur að ég get vel horft framhjá umgjörðinni. Í heildina er ég mjög ánægður með þessi kaup og sé ekki ástæðu til að eyða 150k í svipaðan dell skjá sem er svo með verra input lag [-X




Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf Arkidas » Mán 13. Maí 2013 21:25

Báðir Shimian skjáirnir mínir eru pixel perfect án þess að ég hafi valið að kaupa pixel perfect skjái sérstaklega.

Snýst bara um smá heppni!



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf MuGGz » Mán 13. Maí 2013 21:26

hjalti8 skrifaði:var akkúrat að fá eitt stykki catleap 2703 heim í dag. Ég keypti pixel perfect útgáfu(max 1 svartur pixill) og hann kostaði 67k með öllum gjöldum : http://www.ebay.com/itm/130898742378?ss ... 1497.l2649

Það var svo einn dauður pixill upp í hægra horni en annars er skjárinn nánast perfect. Basicly ómögulegt að koma auga á þennan pixil nema með því að grandskoða skjáinn með hvítum bakgrunn.
Við fyrstu sín virðist vera töluvert betri contrast heldur en á gamla Dell U2311H(e-IPS panel) skjánum mínum, en það er sennilega vegna þess að fjólubláa IPS glow-ið fór rosalega í taugarnar á mér.
Það er samt ips glow á þessum S-IPS panelum en það er hvítt/silfrað en ekki fjólublátt, ég hef ekki ennþá tekið eftir því þar sem það er ennþá mjög bjart í herberginu mínu(glataðar gardínur) svo ég get heldur ekki ennþá kommentað á backlight bleeding(hef amk ekki tekið eftir neinu í björtu herbergi).
Svo tók ég frekar glossy skjá þó svo að það sé frekar slæm speglun þá er ekki sniðugt að hafa grófa matta filmu þegar þú ert kominn með svona fína upplausn. Ég sé ekki eftir því.

Þetta er ekkert æðislegt build quality hjá yamakasi en 2560x1440 LG S-IPS panellinn er það æðislegur að ég get vel horft framhjá umgjörðinni. Í heildina er ég mjög ánægður með þessi kaup og sé ekki ástæðu til að eyða 150k í svipaðan dell skjá sem er svo með verra input lag [-X


120hz ?



Skjámynd

hjalti8
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 353
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 13:03
Reputation: 16
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf hjalti8 » Mán 13. Maí 2013 21:38

MuGGz skrifaði:120hz ?


neib, eins og 'Frosinn' tók fram þá þarf að kaupa sér pcb til að yfirklukka: http://overlordcomputer.com/products/overlord-pcb-set



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf KermitTheFrog » Mán 13. Maí 2013 22:05

MuGGz skrifaði:Sé samt stóran kost t.d. fyrir mig að losna við HDMI tengið þar sem ég nota bara DVI

Munar HELLING í innflutningi vegna tolla!


Held alveg örugglega að það sé búið að leiðrétta þann misskilning. Allavega miðað við verðið á þessum:

http://www.tolvutek.is/vara/benq-gl2450 ... ar-svartur



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1665
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Re: Yamakasi Catleap - Svakalegir skjáir, er þetta málið?

Pósturaf MuGGz » Mán 13. Maí 2013 22:20

KermitTheFrog skrifaði:
MuGGz skrifaði:Sé samt stóran kost t.d. fyrir mig að losna við HDMI tengið þar sem ég nota bara DVI

Munar HELLING í innflutningi vegna tolla!


Held alveg örugglega að það sé búið að leiðrétta þann misskilning. Allavega miðað við verðið á þessum:

http://www.tolvutek.is/vara/benq-gl2450 ... ar-svartur


Það væri gaman að fá staðfestingu á þessu.... því þetta myndi muna alveg helling að flytja sjálfur inn skjá!