gnarr skrifaði:http://www.edbpriser.dk/ vaskurinn fer á allt umfram 43.000kr held ég, ég er samt ekki viss. ef þú færð þetta sent í pósti, þá er vaskur á allt dótið. ekki neinn 43.000kr afsláttur. það er annars enginn tollur af tölvuvörum.
Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.
Einnig ef þú reynir að smygla þessu inn og það mistekst er þetta gert upptækt og bara aumingja þú... svo þú verður bara að meta áhætturnar og ákveða hvað þú ætlar að gera varðandi það.
Annars eru MSI eitthvað ekki að standa sig þessa dagana og ASUS og Abit eru að gera mjög góða hluti svo ef ég væri þú myndi ég reyna að kaupa af þeim... auðvitað eru til önnur góð merki en ég man ekki eftir neinu eins og er

EDBpriser.dk er dönsk verðvakt og er mun ítarlegri en vaktin.is enda miklu stærri markaður svo notaðu hana þegar þú skoðar verðin og mundu að þú þarft að borga danskan VSK líka ef þú lætur senda þér þetta uppá hótelið eða hvar þú ert. Ef þú sækir færðu hann hugsanlega felldan niður.
X800 kortið er glænýtt og þar af leiðandi alltof dýrt... Aldrei að kaupa það besta.. taka það næstbesta.
Svo að það er annaðhvort að bíða með skjákort að taka sér 9800 kortið. 9800Pro kostar úti um 24þúsund.
Svo er bara að vera duglegur að nota Google og Toms hardware