Er að plana að panta mér vatnskælingu og var að velta fyrir mér hvort einhverjir eigi eitthvað af dóti sem þeir vilja selja, svo sem eins og pumpu, fittings, slöngur og þannig lagað. Stefni á að byrja á einum 240 rad og bæta svo við einum 280 þegar ég set GPU-ið í lúppuna. Slöngurnar verða 1/2" ID - 3/4" OD líklega og litaþemað svart og rautt.
Lumar ekki einhver á einhverju sem ég get nýtt?
Er búinn að panta haug að utan. Kemur í ljós þegar ég fer að setja dótið saman hvort mig vanti eitthvað fleira. Fínt að fá að vita samt hverjir eiga parta og vilja selja.
Síðast breytt af Saber á Fim 24. Jan 2013 18:00, breytt samtals 1 sinni.
Heyrðu ég var svo óþolinmóður að ég skellti bara í eina stóra pöntun frá HighFlow, þar sem eitt stk. MCP35X m/heatsink flaut með ásamt fleiru. Nú bíð ég bara spenntur eftir að þau fái allar vörurnar í hús sem ég pantaði og sendi þetta af stað.