Í bandaríkjunum getur þú bókstaflega fætt heila fjölskyldu fyrir lítið sem ekkert ef að þú kaupir skyndibita (er ekki að segja að það sé sniðugt að gera það, er bara að benda á að það er hægt). En hérna á Íslandi er oftar en ekki ætlast til þess að þú borgir 1300-1500 kr fyrir 1 hamborgara, franskar og kók! Og oft fylgir kokteil sósan ekki einu sinni með!

Af hverju er skyndibitamatur svona MIKLU dýrari hérna?
Það er ekki eins og flestir hamborgarar eða samlokunar sem að maður kaupir sé í sjoppum landsins sé eitthvað voða fínn matur.
Segjum að þú farir og kaupir hamborgara máltíðir (borgari, franskar og kók) fyrir þig og fjölskylduna þína (þú, konan og kanski 2 börn). Ef að þú ert heppinn þá færðu kanski eitthvað tilboð og þarft "bara" að borga svona 3400-4000 kr!
Þú gætir líklega keypt MIKIÐ betri og merkilegri mat fyrir það annarstaðar.
Í bandaríkjunum sem er í raun skyndibita land heimsins þá varð skyndibiti vinsæll meðal annars að því að hann er ódýr. Af hverju er hann svona mikið dýrari hérna? Varla getur það verið að því að það þarf að flytja inn hráefni, þótt að það kosti peninga þá getur það varla útskýrt þennan mikla verðmunn.
Af hverju haldið þið að skyndibitinn á Íslandi sé svona dýr?