Erm hjálp..við uppfærslu


Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Erm hjálp..við uppfærslu

Pósturaf Takai » Mán 19. Júl 2004 02:05

Amd vs Intel?
Radeon vs Geforce?

Getur einvher hjálpað mér að setja saman góða leikjavél hérna? Ég er að fara til Danmerkur eftir viku og á líklega eftir að kaupa flesta parta þar til að kaupa eitthvað ódýrara en ég er ekki viss hvað ég á að kaupa!
Hlutir sem að ég þarf er örgjörvi, minni, skjákort og móðurborð og verðtakmarkið er um 60-70 þús (gæti hækkað í "mestu" nauðsyn).

Í skjákortum er ég aðalega að pæla í radeon x800 (held frekar xt en pro) þar sem að hann keyrir vel og er ekki í vandræðum með shading eins og geforce.

Í örgjörvum er ég frekar að pæla í Amd heldur en Intel þar sem að þeir eru að koma með 64 kerfið en ég er ekki viss hvort að það sé nógu sniðugt að kaupa það þar sem að stýrikerfi og annað fyrir það er enn ókominn (en kemur auðvitað á endanum) en þar á móti er intel auðvitað með mikið af nýjungum og ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að velja, hvorki framleiðanda né tegund (var að pæla í amd athlon 64 3800+ en það er frekar dýrt)

Minni getur varla verið það erfitt að velja ef að ég fæ mér amd þar sem að það yrði þá líklega bara venjulegt DDR 1gb 8mb minni (400 ddr líklegast) en ef að það er Intel þá er auðvitað spurning með DDR 2 (en ég veit ekki hvort að það sé komið á markaðinn)

Svo að lokum kemur það sem að ég veit ekkert hvað ég á að gera í ... móðurborð.

Ef að einhver er til í að deila af visku og góðmennsku sinni og hjálpa mér áður en að ég fer út þá væri það frábært þar sem að ég er auðvitað sjálfur að reyna að finna eitthvað út úr þessu en hér er fólk sem að veit miklu meira um þetta en ég.




machinehead
Geek
Póstar: 829
Skráði sig: Fim 27. Maí 2004 17:11
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Pósturaf machinehead » Mán 19. Júl 2004 02:45

Ef þú ætlar að fá þér X800XT þá verður nú ekki mikið eftir af þessum 60-70k kalli...

Frekar að fá þér X800Pro...




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Mán 19. Júl 2004 03:52

Rólegur kallinn, skjákortið og örrinn eru næstum kominn bara 60-70 kallinn, og gb af minni og móðurborð er þetta komið of hátt



Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Mán 19. Júl 2004 07:55

Edit: titli breytt....hve oft þarf að segja ykkur að hafa lýsandi titil :evil:




nomaad
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Fös 09. Jan 2004 11:06
Reputation: 0
Staðsetning: Á hvolfi.
Staða: Ótengdur

Pósturaf nomaad » Mán 19. Júl 2004 11:13

Þú þarft að teygja þennan 60-70 þús. kall ansi langt ef þú ætlar að fá þér allt þetta :?

Ég veit ekki hvað íhlutir kosta úti í Danmörku, en ef við gerum ráð fyrir að þeir séu svona 20% ódýrari þá ættirðu að geta fengið þér Athlon64 3000+, eitthvað fínt Nforce3-250 móðurborð (ég myndi mæla með Gigabyte eða MSI) og 512MB vinnsluminni. Það er algerlega ómögulegt fyrir þig að fá þér X800Pro með þetta budget. Því mæli ég með að reyna að finna eitthvað ódýrt Radeon 9800Pro kort, þau eru að lækka hratt og örugglega.


n:\>


Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mán 19. Júl 2004 12:35

Well ... hefði ekki spurt hérna hefði ég verið viss á þessu.

En sýnt af heimasíðu ati þá ætti ætti x800 pro að kosta 399$ eða um 28000 og x800 xt 499$ eða um 35000 (og þá myndi ég líklega taka pro) og mér langar frekar í x800 heldur en 9800 :) og svo er það líklega eitthvað aðeins dýrara úr búð.

Amd 64 örri er ég ekki alveg viss um í verði en miðað við þau verð sem að ég er búinn að finna þá ættu þau að kosta á milli 20-35 þús en eins og ég sagði þá er ég ekki viss. Spurning með það .... eru öll 64 kortin betri í leiki en sambærileg Intel kort? Auðvitað alltaf eitthvað nýtt á hverri tegund en er einhver tegund af amd 64 sem að hefur verið að skila lélegum árangri og eru 939 pinna kortin (3500+ og 3800+) að skila mikið meiri árangri heldur en 754 kortin (veit að það byggist allt á því hvaða módel ég er að miða við)??

1 Gb DDR 400 8mb er ódýrast hérna á um 24500 og þá líklega eitthvað ódýrara úti en ég var að skoða verðin og er að pæla hvort að það sé eitthvað sniðugara að taka frekar 2x 512 DDR 400 minni heldur en 1gb pakkningu (veit að það er líklega tveir kubbar) allavega sýnist mér það koma betur út peningalega séð en veit ekki með vinnslu.

Svo eru það móðurborð sem að ég hef lítið sem ekkert vit á, veit bara að ég þarf samhæfanlegt móðurborð fyrir allt. En með tegundir á móbóum .... er held ég ekki að fara að kaupa Gigabyte þar sem að vinur minn keypti sér nýlega eitt þannig og það entist í fáeina mánuði eða svo ... not cool. MSI þekki ég eiginlega ekkert nema að nafninu til en vinur minn var að benda mér á Asus upp á að vera gott og stable en hverju mæliði með af þessum þremur (Asus vs MSI vs Gigabyte). En þetta nforce3 nafn .. hljómar frekar nvidia legt ... er þetta eitthvað meiri kort fyrir Geforce heldur en Radeon eða er þetta bara nafn?

Þannig að verð eins og ég er að reikna út hérna væri um 80 - 90 þús en hin talan var líka frekar það sem að ég var að reyna að halda mér innan (gengur allavega frekar illa að halda í hana :þ)

Þarf núna bara comment á þessu og ef að einhverjir af þessum pörtum eru of öflugir miðað við hina partana svo að þeir séu ekki að ná að skila fullum krafti þá að láta mig vita ... bara plzz ekki skamma mig fyrir að vera að spyrja svona mikið ... er að reyna að kaupa góða tölvu sem að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af að þurfa að stækka fyrr en eftir vonandi um 4 ár eða meira (mín búin að endast í þennan tíma eða meira og ekkert búinn að þurfa að stækka hana eða láta laga neitt fyrr en nú og þetta er pakka tölva frá BT!)

Væri einnig fínt ef að einhver gæti bent mér á góða tölvubúð í Köpen sem er góð og með góð verð.

PS. vissi ekki að ég þyrfti að segja að ég þyrfti að fá hjálp "við uppfærslu" þar sem að ég var á uppfærslu forum. :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 19. Júl 2004 12:53

shæt hvað þú veist lítið hvað þú ert að fara að eyða peningunum í..
AMD og Intel eru örgjörfaframleiðendur. örgjörfar eru ekki kort. í danmörku eru notaðar krónur ekki dollarar.

ég fann x800pro ódýrast á 41.500 isk og x800xt á 53.000 isk


1 Gb DDR 400 8mb
wtf?

Svo eru það móðurborð sem að ég hef lítið sem ekkert vit á
lol.. ertu viss um að það séu bara móðurborðin sem þú veist ekki nógu mikið um?

nVidia er kubbasetta framleiðandi, þeir framleiða nForce kubbasettin. nVidia kort eru ekkert betri en ati kort á þeim.



---

kaupru ódýrasta amd64 sem þú finnur, gott móðurborð, 1GB af einhverju góðu minni, ekkert endilega með lágu CL. ég efast um að þú finnir muninn á CL2 og CL3. og kauptu svo x800pro eða xt eftir því hvoru þú hefur efni á.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mán 19. Júl 2004 13:20

Já ég veit að AMD og Intel eru örgjörvaframleiðendur... en eru þetta ekki kort ... viðurkenni alveg að ég vissi það ekki.
Í Danmörku eru já notaðar danskar krónur en á bandarískum netverslunum og heimasíðum framleiðanda eru gefinn upp verð í "dollurum".

Þetta x800 pro sem að þú fannst ódýrast á 41500 ... var það úr búð hérna heima eða frá Köpen ?

Og hvað var rangt við 1 Gb DDr 400 8mb ... correct the nýliði.

ok kaupa mér ódýrt amd64 ... thnx ... gott móðurborð ... veit ekki hvaða tegund er stabíl og góð eins og ég tók fram að ofan þar sem að Gigabyte móðurborð vinar míns fór í hakk eftir nokkra mánuði þar sem að báðir biosarnir fóru í hakk og enginn cmos kubbur á Gigabyte. 1 gb af góðu minni ... kaupa þá bara 1 gb minni eða kaupa 2 stök 512? (skoðaðu bara minnis verðin á verðlistanum og þá sérðu pælingar n00bsins)i? og hvað er cl :oops: ?




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1825
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Mán 19. Júl 2004 13:31

1 Gb DDR 400 [b]8mb[b] held að hann sé að tala um 8mb-in en ég sá þetta einhverstaðar og þetta átti að vera buffer :? örugglega bara eitthvað sem er á öllum en er tekið sér fram til að hljóma betur :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 19. Júl 2004 13:38

það er ekki buffer á vinsluminnum...

taktu 2x 512mb, það er mun betra, sniðugra og ódýrara. ég er ekki nógu vel inní amd64 móbóunum, einhver annar verður að svar því.

verðin eru verð sem ég fann á danskri verðvakt og reyknaði yfir í íslensk verð með genginu 11.86.

þú verður líka ða passa það að ef þú kaupir fyrir 43.000kr eða meira þarftu að borga vask.


"Give what you can, take what you need."


Cicero
Nörd
Póstar: 107
Skráði sig: Mán 31. Maí 2004 21:55
Reputation: 0
Staðsetning: if in doubt: pound on it
Staða: Ótengdur

Pósturaf Cicero » Mán 19. Júl 2004 13:48

Örgjörvi :Amd 64 3000
Móðuborð :Gigabyte-GA-K8NS Pro
Minni :DDR 512(433)
Skjákort :Radeon 9600 XT 256mb
þetta mun kosta sirca saman 70.000 kr


tók þetta af póst hérna á uppfærslur
Síðast breytt af Cicero á Mán 19. Júl 2004 13:49, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mán 19. Júl 2004 13:48

Hey hvað er url á þessari dönsku verðvakt? t
en þetta með VASKinn er hann fyrir hvern hlut sem að ég kaupi eða total?
Og hvernig er það svo .. er nokkuð mál að flytja þetta í gegnum toll ... eða þarf að borga auka fyrir það ... kannski að marr sendi þetta bara í pósti sem brothætt :)




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mán 19. Júl 2004 13:52

Cicero skrifaði:
Örgjörvi :Amd 64 3000
Móðuborð :Gigabyte-GA-K8NS Pro
Minni :DDR 512(433)
Skjákort :Radeon 9600 XT 256mb
þetta mun kosta sirca saman 70.000 kr


tók þetta af póst hérna á uppfærslur


ok cool en ég ætla að fá mér stærra skjákort, stærra minni og annað móðurborð svo að þessi pæling með 70 þús er líklega dauð ...

thnx anyway



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 19. Júl 2004 13:59

http://www.edbpriser.dk/ vaskurinn fer á allt umfram 43.000kr held ég, ég er samt ekki viss. ef þú færð þetta sent í pósti, þá er vaskur á allt dótið. ekki neinn 43.000kr afsláttur. það er annars enginn tollur af tölvuvörum.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mán 19. Júl 2004 14:05

en hvað er þetta cl dæmi ... finn það ekki á google :/



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 19. Júl 2004 14:09

cas latency


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Mán 19. Júl 2004 15:15

Það er ekki buffer á minni bara CAS eða Column Access select (strope) Það einfaldlega þýðir hvað minnið getur sótt upplýsingarnar hratt og unnið úr þeim.
Því lægra því betra :)




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Mán 19. Júl 2004 17:38

Ég held nú að flestir sem eiga þetta gigabyte borð séu nokkuð sáttir, en annars getur þú farið í asus eða abit. Bara -
amd64 3000+ eða 3200+
2x512 mb ddr 400 minni
x800pro eða xt (fer eftir bugdet)
spyrðu einhvern sem veit eitthvað um amd 64 móðurborð hérna um hvað þú átt að fá þér




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Þri 20. Júl 2004 00:23

ok flott ... þetta er nokkurnsveginn sú hugmynd á tölvu sem að ég var búinn að koma mér upp.

En hver veit eitthvað um Amd 64 móðurborð??




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Þri 20. Júl 2004 00:32

smá svona pæling með örran og kælingu í tölvum ... oem er það ekki án örgjörvaviftu?? Og svo er ég líka að pæla ... ég þarf enga súper viftu fyrir þennan búnað nema að ég fari að overclocka ... right?




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Þri 20. Júl 2004 00:47

Viftan sem fylgir er nóg ef þú ætlar ekki að yfirklukka (getur þess vegna yfirklukkað með hana)

Svo skipta líka margir um viftu til að hafa tölvuna hljóðlátari.

Jú, rétt. Með oem fylgir engin vifta.




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Þri 20. Júl 2004 15:47

gæti verið auka 4-5 þúsund ef þú ætlar í einhverja betri viftu en retail eða að fá þér oem. Mæli þar með zalman cnps7000 al-cu eða bara cu. Það heyrist ekkert í þeim og kæla mjög vel




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Þri 20. Júl 2004 20:35

held að ég hafi ekki verið búinn að spyrja en hvað þarf eg stórt powersupply ... 360? ... 400? stærra?




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Mið 21. Júl 2004 00:35

400w ætti að vera alveg nóg. Vertu bara viss um að fá þér góða tegund, t.d. zalman, fortron, vantec og fleiri




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mið 21. Júl 2004 00:37

ok thnx