Var að fá mér leikja lappa og er að fá mér skjá til að geta tengt við ef maður er að taka session heima.
Nú er spurningin hvort maður eigi að reyna að finna sér skjá með hub (usb möguleika) þar sem ég get verið með lyklaborð og mús og hugsanlega heyrnatól ávallt tengd við skjáinn og pluggað svo bara lappanum í skjáinn og allt er samtengt.
Er þetta hægt og hvaða skjá ætti maður að velja til að geta fullnýtt svona möguleika?
Sé ekki möguleikann á lappanum til að vera með hann í dokku svo það er ekki í boði.
Öll input og hugmyndir vel þegnar

- http://forums.macrumors.com/showthread.php?t=671859
Hérna er verið að spyrja um það sama sýnist mér
"Only if you also have the USB cable that goes from the computer to the back of the monitor so the signal from your keyboard can reach the computer. DVI does not pass USB information.
"
Áframsendir skjárinn merkið bara sisona. Er ekki limit á því hvað og hversu mikið og hvernig hann getur áframsent í lappann. Ef einhver þekkir þetta og veit hverju ég á að vera leita að til að finna rétta skjáinn endilega commenta

"USB Hub - Yes (4*downstream, 1*upstream)"
- 4 tengingar fyrir lyklaborð, mús, hitt og þetta... og 1 tenging til að tengja lappann við skjáinn (upstream)?
Þýðir þetta það?