Heyrðu þannig er mál með vexti að ég keypti mér íhluti nýlega. Ekkert mál með það, setti tölvuna saman og hún keyrði flott bara fyrstu 2-3 dagana og gerir í raun enn.
En það kom svolítið skrýtið uppá á einum tímapunkti, síminn minn rann af skrifborðinu ofan á kassann bara létt og bakvið tölvuna og hún drap á sér, svo strax eftir það kveikti hún ekki um leið á sér, mér datt í hug að takkinn til að kveikja væri ekki nógu vel tengdur til að ræsa vélina svo ég opna vélina og endurtengi alla kassa takkana og eftir það fer tölvan í gang en bara í svona 1 mín, segir mér að fara inní BIOS til að ná í stillingar aftur. Tölvan slekkur svo á sér og aftur kveikir ekki á sér aftur fyrr en ég opna hana og fikta núna í 24pin og 8pin tenginu.
Núna ákveð ég að setja tölvuna ekki bakvið alveg þar sem það er bras að ná í hana ef ég kem henni alveg fyrir, heldur snögg tengi aðal hlutina og set hana í gang, sama gerist hún slekkur á sér, en það fyndna var að þegar ég rak mig í hana fór hún í gang, í svona 2 sek og drap svo aftur á sér, svo ég prófaði að halla kassanum og þá var eins og hún væri að reyna að keyra sig upp svona 5 til 6 sinnum, viftan fór í gang og svo dó á henni fljótt aftur og hún gerði þetta nokkuð oft án þess að ég snerti takkana, bara hallaði tölvunni aðeins og e-ð smá snerti hana, mjööög spes.
Svo mér er að detta í hug einhverskonar sambandleysi en get ómögulega fundið út hvað það er því ég er búinn að tengja allt vel og fara yfir allt. Er þetta ekki bara 8pin eða 24pin tengið sem stjórnar svona hegðun ?
Annars tókst mér að fá tölvuna svo til ða keyra sig bara eðlilega og setti hana á sinn stað en þó ó lokaða. Ég var að pæla hvort einhver hefði ráð fyrir mig til að skoða svona áður en ég geng frá henni alveg.
Sérstök hegðun
Re: Sérstök hegðun
jáá og kannski taka fram að það kom líka eitt skipti þar sem ég prófaði að rugla ekkert í tengingum heldur bara taka úr bios batterý dæmið til að endursetja hann og sama gerðist, hún fór í gang en drap fljótt á sér. Þurfti s.s alltaf að fikta e-ð inní kassanum til að fá hana til að keyra sig e-ð í gang aftur, ef ég gerði ekkert eftir að hún dó bara skipti engu hvað ég ýtti oft á kveiki takkan eða 0/1 fiktaði á PSU-inu. Þannig ég hallast verulega af einhverri tengingu á móðurborði.
-
- /dev/null
- Póstar: 1404
- Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
- Reputation: 103
- Staðsetning: 109 Rvk
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Sérstök hegðun
gæti síminn hafa lent á inntakinu fyrir PSU kapalinn og skaddað tenginguna. mér dettur í hug að skipta um rafmagnskapalinn og ef ekki þá reyna að prófa aðra PSU í kassanum.
Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Áhugamál: Heimspeki, Tölvur, Tækni, Vélbúnaður, Mannlíf, Greiningar, Leikir, Hjólatúrar, Myndbandsgerð, Gervigreind, Kerfisfjölfræði, Framtíð
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Áhugamál: Heimspeki, Tölvur, Tækni, Vélbúnaður, Mannlíf, Greiningar, Leikir, Hjólatúrar, Myndbandsgerð, Gervigreind, Kerfisfjölfræði, Framtíð
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander