Jæja þá er kominn tími á smá update. Búinn að fá skjákortið í vélina og fékk svo pakka frá Mnpctech í síðustu viku en hef bara ekki haft tíma í þetta fyrr en í dag.

Krassaði fyrir gluggunum fyrir svolitlu síðan.

Gat svo komist í að skera fyrir öðrum glugganum þar sem veðrið var voða fínt og búinn að fá almennilegt U-Channel...

Bjó mér til þessa fínu vinnuaðstöðu fyrir utan svefnherbergisgluggann

Skurðurinn pússaður og fínn

virkar ójafn þarna efst en það er bara einhver glampi sem gerir það að verkum... Frekar góður skurður hjá mér þó ég segi sjálfur frá


Og svo búinn að lakka skurðinn og skella U-Channelinu á...
