kristjanm skrifaði:Hvað þetta myndi kosta fer allt eftir því hvernig móðurborð/örgjörva þú ætlar að fá þér.
Ég myndi segja allt frá 30.000-60.000.
Intel ætla að lækka verðin á örgjörvunum sínum nokkuð mikið 22. ágúst, svo að talan ætti að breytast þá.
Og já, (gömlu) örgjörvarnir eru 478 pinna, en nýju móðurborðin styðja aðeins 775 pinna örgjörva, þú þarft semsagt að kaupa bæði nýtt móðurborð og örgjörva.
Alveg rólegur! 30 til 60 þúsund skeljar, heldurðu að þetta verði frítt? Þetta á eftir að kosta að minnsta kosti 50 - 90 þúsund skeljar....
Öll ný kubbasett frá Intel eru ógeðslega dýr (til að byrja með allavega), þú borgar að minnsta kosti 20.000 kr.- fyrir móðurborðið...
