Málið er að þegar ég tengi iPodinn minn við Aux tengið þá kemur lágt hátíðni suð þegar ég hlusta á lag en það gerist ekki þegar tónlistin er stopp. Þetta hljóð kemur ekki þegar ég tengi önnur tæki við eins og t.d. Android síma.
Hefur einhver ykkar lausn á þessu eða lent í eitthverju svipuðu með iPod/iPhone þegar hann er tengdur við Aux?
Endilega koma með ábendingar og öll hjálp er vel þegin
