Intel gefur út 3.6GHz Prescott fyrir socket 775


Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Intel gefur út 3.6GHz Prescott fyrir socket 775

Pósturaf wICE_man » Lau 19. Jún 2004 09:48

Nú er biðin á enda. Við getum hætt að velta fyrir okkur hugsanlegum afkastaaukningum socket 775, niðurstöðurnar eru hér:

http://www.anandtech.com/chipsets/showdoc.html?i=2088
http://www.extremetech.com/article2/0,1558,1614791,00.asp
http://www.hothardware.com/viewarticle.cfm?articleid=542&cid=1
http://www.hexus.net/content/reviews/review.php?dXJsX3Jldmlld19JRD03ODg=

Það verður að segjast eins og er að þetta eru ekki tölurnar sem ég var að vonast eftir, það er lítil sem engin bæting fram yfir socket 478. Það hefði verið gaman að sjá 1066MHz FSB en við verðum víst að bíða lengur eftir því.

Það verður þó að hrósa Intel fyrir góðan heildarpakka á nýju 925X/915 kubbasettunum sem eru sneysafull af aukamöguleikum, enn fremur er gott að sjá Intel rífa klukkuhraðann aðeins ofar þó að mér skiljist að það verði því sem næst ógerlegt að ná í nýja 3.6GHz prescottinn, jafnvel 3.4GHz örrinn er vart sjáanlegur í verslunum en það bætist úr því eftir því sem líður á árið.




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Lau 19. Jún 2004 16:25

Þessi kemur líklega aldrei til sölu á Íslandi ef hann er framleiddur í svona litlu magni.




Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Lau 19. Jún 2004 17:13

Jújú, hann kemur á endanum. Það er bara spurning hversu lengi menn þurfa að bíða, svo er náttúrulega sáralítill munur á 3.4GHz og 3.6GHz í afköstum.

Annars sýnist mér að eftir þessi umskipti muni Intel ná frekari forskoti á AMD í 3D-vinnslu, en fórna efsta sætinu í hljóð og myndvinnslu í staðinn. Það virðist allavega vera stefnan í þeim prófunum sem ég hef séð. Samkvæmt því sem Intel hafa gefið út eigum við að sjá 4GHz prescott fyrir áramót, en miðað við undanfarnar seinkanir og vandræði í vinnslu þá tel ég að það muni seinka fram á annan ársfjórðung 2005 nema að Intel fari að draga einhverjar kanínur úr hatti sínum.




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Lau 19. Jún 2004 20:03

wICE_man skrifaði:...nema að Intel fari að draga einhverjar kanínur úr hatti sínum.

Það væri nú gaman að sjá dual core örgjörfa fyrir desktop :)




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 996
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 46
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Lau 19. Jún 2004 20:16

Þetta er nokkuð skemmtilegur sökkull, mér sýnist að þeir hafa gert sér grein fyrir því hvað fólk er að beygla lappirnar á örgjörvunum mikið.

Ég hef gert það, rétti þær samt aftur með hníf.

Dual Core verður svallt, þá má reikna með virkilega meiri performance.

En það sem liggur á núna er að auka afköst harðra diska, 133-150 hámarksafköst er mjög lélegt miðað við hvað hitt er orðið hraðvirkt.


Hlynur


Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Sun 20. Jún 2004 15:52

Gumol:
Það væri nú gaman að sjá dual core örgjörfa fyrir desktop


Hlynzi:
Dual Core verður svallt, þá má reikna með virkilega meiri performance.


Enn sem komið er hefur Intel ekki sett fram skýrar tímasettningar um það hvenær þeir ætla sér að hefja framleiðslu á þeim en það er alveg á tæru að þeir munu gera það enda hefur AMD nú þegar smíðað prufugerð af Dual-core Opteron örgjörva og ætla þeir að hefja framleiðslu á þeim í upphafi ársins 2005. Dual-core eða tvíkjarna örgjörvar munu vissulega auka afkösttil muna í þeim forritum sem nýta sér fleiri en einn örgjörva og í framhaldinu munum við sjá fleiri og fleiri forrit nýta sér marga örgjörva.

Ég vona bara að við þurfum ekki að borga tvöfalt verð fyrir þá.

Hlynzi:
Þetta er nokkuð skemmtilegur sökkull, mér sýnist að þeir hafa gert sér grein fyrir því hvað fólk er að beygla lappirnar á örgjörvunum mikið.


Ég hef ekki enn lent í því að beygla lappir á örgjörva enda geymir maður þá ekki á glámbekk, en aftur á móti er það alveg þó nokkuð um að lappir beyglist í meðhöndlun og í sumum tilfellum getur örgjörvaframleiðandinn verið ábyrgur. Intel ætla því að koma ábyrgðinni yfir á framleiðendur móðurborða sem margir hverjir hafa kvartað yfir að nýji sökkullinn sé allt of viðkvæmur og margir hafa neitað að ábyrgjast flerir en 20 ísettningar. Þá er bara að vona að móðurborða framleiðendum takist að leysa það vandamál svo að menn þurfi nú ekki að vera að kaupa sér nýtt móðurborð eftir að hafa eyðilagt sökkulin á því.

Hlynzi:
En það sem liggur á núna er að auka afköst harðra diska, 133-150 hámarksafköst er mjög lélegt miðað við hvað hitt er orðið hraðvirkt.


Vandamálið er ekki 150MB/s fluttningsgetu SATA diskstýringa heldur það að 7200 snúninga diskar eru ekki einu sinni að ná 100MB/s fluttningshraða, mig minni að það sé sáralítill hagnaður af að fara frá ATA-66 upp í ATA-100. Það sem ég vil sjá eru flash harðir diskar sem hafa enga hreyfanlega hluti í sér enda er það mekaníski þáttur harðra diska sem er að aftra hraðanum, ekki staðlarnir sem diskstýringarnar nota.




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Sun 20. Jún 2004 23:15

Ég vill endilega fá að benda á reviewið á síðunni http://www.tomshardware.com

Þeir gerðu mjög stóra og nákvæma grein um þetta og segja sjálfir að hún sé stærsta verkefni þeirra til þessa.




Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Þri 22. Jún 2004 01:35

Já, ég gleymdi að bæta henni við, vissulega góð grein en var ekki komin út þegar ég skrifaði þennan þráð.



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Þri 22. Jún 2004 10:07

mér lýst nú ekki nógu vel á 775 platformin... Talað um að Intel er búið að setja læsingar á FSB yfirklukkun, svipað og multiplierinn er læstur. Lesið að móðurborðin reset'i sig ef FSB er kominn meira en 10% hraðar en hann á að vera!

Intel semsagt að henda enthusiest markaðnum frá sér!

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED


Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Þri 22. Jún 2004 19:40

Já, það kann ekki góðri lukku að stýra.

Þeir neyðast til að breyta þessu þegar þeir sjá næstu sölutölur :P




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Þri 22. Jún 2004 22:55

Móðurborðaframleiðendur ASUS og Gigabyte hafa nú þegar náð að brjóta þennan "Overclock lás".

Kannski er "brjóta" ekki rétta orðið, því að þeir hafa víst bara náð að breyta þessu í 15-20% overclock takmark.

Annars held ég að overclockerarnir þurfi lítið að vera að svekkja sig yfir þessu, ég meina, hver kaupir sér Prescott til að overclocka?




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Þri 22. Jún 2004 23:27

Ætli þeir nái ekki að fixa hitavandamálið bráðlega




Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Mið 23. Jún 2004 00:37

Mér sýnist á öllu að Socket 775 örrarnir dragi meiri straum heldur en samskonar socket 478 örgjörvar svo að ég efast um að hitavandamál séu úr sögunni.




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Mið 23. Jún 2004 00:40

BTX er til þess að laga hitavandamálið þeirra..

En að láta mann þurfa kaupa nýjan kassa og psu er bara kjaftæði..



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1327
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 108
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mið 23. Jún 2004 00:49

kristjanm skrifaði:Móðurborðaframleiðendur ASUS og Gigabyte hafa nú þegar náð að brjóta þennan "Overclock lás".

Kannski er "brjóta" ekki rétta orðið, því að þeir hafa víst bara náð að breyta þessu í 15-20% overclock takmark.

Annars held ég að overclockerarnir þurfi lítið að vera að svekkja sig yfir þessu, ég meina, hver kaupir sér Prescott til að overclocka?


Líka talað um að Extreme Edition útgáfurnar af örgjörvunum verði með ólæstan multiplier og FSB....

þannig að við erum væntanlega að tala um að valið fyrir OC'ara verði
Intel chipset og P4 EE örri (dýrt!!)
VIA/SiS og P4 (svo lengi sem þeirra chipset verða ekki með OC lás)
AMD64

Fletch


AMD Ryzen 5700X3D * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * MSI 32" MPG 321URX 4k OLED


Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Mið 23. Jún 2004 18:04

Það hafa heyrst raddir um að einhverjir framleiðendur ætli að gefa út socket 775 móðurborð byggð á 875p kubbasettinu, það gæti verið málið fyrir yfirklukkara.




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 23. Jún 2004 20:34

Meira rafmagn þarf ekki endilega að þýða meiri hiti ef þeir breyta einhverju í örranum sjálfum




Höfundur
wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Mið 23. Jún 2004 22:46

Reyndar er breytist allt afl sem örgjörvinn tekur í hita, þannig að ef örgjörvi tekur 100W þá hitar hann um 100W sama hvernig hann er uppbyggður. Hins vegar er sennilegt að móðurborðin höndli það betur að skaffa örranum straum og hitni þess vegna minna (eða jafnar) sjálf sökum ofhleðslu. Það held ég að sé helsti kostur S775 umfram S478.




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 996
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 46
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Fim 24. Jún 2004 22:40

wICE_man skrifaði:Gumol:
Það væri nú gaman að sjá dual core örgjörfa fyrir desktop


Hlynzi:
Dual Core verður svallt, þá má reikna með virkilega meiri performance.


Enn sem komið er hefur Intel ekki sett fram skýrar tímasettningar um það hvenær þeir ætla sér að hefja framleiðslu á þeim en það er alveg á tæru að þeir munu gera það enda hefur AMD nú þegar smíðað prufugerð af Dual-core Opteron örgjörva og ætla þeir að hefja framleiðslu á þeim í upphafi ársins 2005. Dual-core eða tvíkjarna örgjörvar munu vissulega auka afkösttil muna í þeim forritum sem nýta sér fleiri en einn örgjörva og í framhaldinu munum við sjá fleiri og fleiri forrit nýta sér marga örgjörva.

Ég vona bara að við þurfum ekki að borga tvöfalt verð fyrir þá.

Hlynzi:
Þetta er nokkuð skemmtilegur sökkull, mér sýnist að þeir hafa gert sér grein fyrir því hvað fólk er að beygla lappirnar á örgjörvunum mikið.


Ég hef ekki enn lent í því að beygla lappir á örgjörva enda geymir maður þá ekki á glámbekk, en aftur á móti er það alveg þó nokkuð um að lappir beyglist í meðhöndlun og í sumum tilfellum getur örgjörvaframleiðandinn verið ábyrgur. Intel ætla því að koma ábyrgðinni yfir á framleiðendur móðurborða sem margir hverjir hafa kvartað yfir að nýji sökkullinn sé allt of viðkvæmur og margir hafa neitað að ábyrgjast flerir en 20 ísettningar. Þá er bara að vona að móðurborða framleiðendum takist að leysa það vandamál svo að menn þurfi nú ekki að vera að kaupa sér nýtt móðurborð eftir að hafa eyðilagt sökkulin á því.


Ég var að setja retail örgjörva í tölvu fyrir vin minn og þurfti að beyta smá afli á umbúðirnar, (ég nennti ekki að bíða eftir skærum/beyttum hníf)
:lol: svo að ég reif umbúðirnar af (sterkur þann daginn ;) og örgjörvinn skoppaði upp og lenti á borði og meikaði eins meters fall.


Hlynur