Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Mið 04. Júl 2012 16:23

Sælir en ég var að spá að versla mér þennan til að hafa stýrikerfið á en er hann góður til þess?

Seagate 1TB SATA3 7200RPM 64MB 003 DL

HDS3 SE1TB 003 DM

http://tolvulistinn.is/vara/25401

diabloice
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Mið 09. Mar 2011 08:44
Reputation: 5
Staðsetning: Keflavík
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf diabloice » Mið 04. Júl 2012 16:27

Persónulega myndi ég fá mér 120Gb SSD disk fyrir stýrikerfiðog þau forrit sem þú notar mest ( ekki leiki) og nota þennan sem geymsludisk (fyrir niðurhal ,leiki og þessháttar)

en það eru mín 2cent

Rig 1: Amd Ryzen 3900X @4.2 Corsair H100i Pro , GPU: Asus GTX 1070 STRIX 16Gb DDR4 3600hmz
Rig 2: Intel Core I5 7600k @ Stock MB :Gigabyte GA-X270X -Utltimate Gaming GPU : GTX 1060 16GB DDR4
Laptop:Asus G61J Core i7 720QM 8GB Ram 120GB SSD 1024MB Nvidia 360m GTS

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Mið 04. Júl 2012 16:36

diabloice skrifaði:Persónulega myndi ég fá mér 120Gb SSD disk fyrir stýrikerfiðog þau forrit sem þú notar mest ( ekki leiki) og nota þennan sem geymsludisk (fyrir niðurhal ,leiki og þessháttar)

en það eru mín 2cent

En er ekki mælt með því að Blue sé mælt með í stýrikerfisdisk og Green í geymsludisk?

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 173
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf AntiTrust » Mið 04. Júl 2012 16:41

frikki1974 skrifaði:
diabloice skrifaði:Persónulega myndi ég fá mér 120Gb SSD disk fyrir stýrikerfiðog þau forrit sem þú notar mest ( ekki leiki) og nota þennan sem geymsludisk (fyrir niðurhal ,leiki og þessháttar)

en það eru mín 2cent

En er ekki mælt með því að Blue sé mælt með í stýrikerfisdisk og Green í geymsludisk?

WD Black = Meiri hraði, meiri rafmagnsnotkun og meiri hávaði.
WD Blue = Balance á milli black og green
WD Green = Lítil rafmagnsnotkun, lítill hávaði, minni hraði

En SSD fyrir stýrikerfi hiklaust ef þú hefur tök á því. Himinn og haf á milli slíkra diska og spindladiska.

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Mið 04. Júl 2012 16:51

AntiTrust skrifaði:

Ég kíki betur á þetta en þessir SSD diskar eru bara svo suddalega dýrir en er það bara á Íslandi að sjálfsögðu?

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 173
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf AntiTrust » Mið 04. Júl 2012 16:57

frikki1974 skrifaði:
Ég kíki betur á þetta en þessir SSD diskar eru bara svo suddalega dýrir en er það bara á Íslandi að sjálfsögðu?

SSD eru bara yfir höfuð mikið dýrari en spindladiskar. Harðir diskar hafa verið flöskuháls í tölvum hvað varðar almennan vinnsluhraða í mörg ár þar til SSD komu. Fólk þarf bara að prufa að vinna á vél með SSD til að átta sig á muninum. Það fara allavega fáir úr SSD yfir í HDD eftir að hafa prufað.

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Mið 04. Júl 2012 17:13

Manni langar í einn svona slíkan en ég ætla skoða vandlega þetta dæmi:)

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf GuðjónR » Mið 04. Júl 2012 17:25

frikki1974 skrifaði:
diabloice skrifaði:Persónulega myndi ég fá mér 120Gb SSD disk fyrir stýrikerfiðog þau forrit sem þú notar mest ( ekki leiki) og nota þennan sem geymsludisk (fyrir niðurhal ,leiki og þessháttar)

en það eru mín 2cent

En er ekki mælt með því að Blue sé mælt með í stýrikerfisdisk og Green í geymsludisk?

Þú linkar í Seagate disk og þeir eru ekki blue/green/black.

Ef þú velur HDD í stað SSD sem stýriskerfis disk þá er þessi diskur sem þú linkar í ágætur bara, ekkert út á hann að setja.

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Mið 04. Júl 2012 17:28

GuðjónR skrifaði:

Eru það ekki diskarnir frá WD sem eru titlaðir þetta blue/green/black?

arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 983
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 133
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf arons4 » Mið 04. Júl 2012 17:40

AntiTrust skrifaði:
frikki1974 skrifaði:
diabloice skrifaði:Persónulega myndi ég fá mér 120Gb SSD disk fyrir stýrikerfiðog þau forrit sem þú notar mest ( ekki leiki) og nota þennan sem geymsludisk (fyrir niðurhal ,leiki og þessháttar)

en það eru mín 2cent

En er ekki mælt með því að Blue sé mælt með í stýrikerfisdisk og Green í geymsludisk?

WD Black = Meiri hraði, meiri rafmagnsnotkun og meiri hávaði.
WD Blue = Balance á milli black og green
WD Green = Lítil rafmagnsnotkun, lítill hávaði, minni hraði

En SSD fyrir stýrikerfi hiklaust ef þú hefur tök á því. Himinn og haf á milli slíkra diska og spindladiska.

Til að bæta ssd inní þetta þá trumpar hann alla hina á öllum sviðum nema geymsluplássi.

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf GuðjónR » Mið 04. Júl 2012 17:53

frikki1974 skrifaði:Eru það ekki diskarnir frá WD sem eru titlaðir þetta blue/green/black?

Jú, en þú ert að spyrja um Seagate í upphafsinnlegginu :)

raekwon
Nörd
Póstar: 110
Skráði sig: Mán 07. Jan 2008 13:04
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf raekwon » Lau 07. Júl 2012 10:37

félagi minn og vinur hans eru alltaf að hittast með tölvurnar sínar og eru með svipaða uppsetningu annar á i5 og hinn i7 en nánast sami örgjörvi og rest er sambærileg ef ekki eins, i7 vélin var lengur að starta upp og starta leikjum og átti til að hika aðeins í þeim og ég setti ssd disk í hana fyrir stýrikerfið ofl og hún er svo margfalt sneggri að fólk yrði bara hissa ef það sæi hvað það er gríðarlega mikill munur, leikir eru 2-5 sek að lodast og vélin sjálft startar sér upp á litlum tíma og allt hik og svona alveg farið úr henni svo ekki sé talað um að heyrist ekkert í þessum diskum svo ég get alveg hiklaust mælt með þeim jafnvel í staðin fyrir að skipta út skjákorti sem rétt hikar í leikjum.

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Lau 07. Júl 2012 13:23

raekwon skrifaði:félagi minn og vinur hans eru alltaf að hittast með tölvurnar sínar og eru með svipaða uppsetningu annar á i5 og hinn i7 en nánast sami örgjörvi og rest er sambærileg ef ekki eins, i7 vélin var lengur að starta upp og starta leikjum og átti til að hika aðeins í þeim og ég setti ssd disk í hana fyrir stýrikerfið ofl og hún er svo margfalt sneggri að fólk yrði bara hissa ef það sæi hvað það er gríðarlega mikill munur, leikir eru 2-5 sek að lodast og vélin sjálft startar sér upp á litlum tíma og allt hik og svona alveg farið úr henni svo ekki sé talað um að heyrist ekkert í þessum diskum svo ég get alveg hiklaust mælt með þeim jafnvel í staðin fyrir að skipta út skjákorti sem rétt hikar í leikjum.

Ég verð bara að skella mér á ssd disk ef þetta sé staðreyndin en hvaða ssd diskar eru bestir í dag?

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf Gúrú » Lau 07. Júl 2012 15:34

Crucial M4 er mesti bang for the buck 128GB diskurinn að mínu mati eftir að hafa skoðað þetta í heilan dag.
3 ára ábyrgð hjá Tölvutækni sem er vel virði auka þúsundkallsins frá Expected Value sjónarhorni,
ef þú stefnir að því að flytja úr landi á næstu tvem þá er hann 1 000 ódýrari hjá Computer.is.

Ef þú vilt ódýrari disk og/eða þarft ekki svona mikið pláss (Spilar kannski ekki tölvuleiki eða álíka) þá ertu
samt að fara að sjá vel mikinn mun í vinnsluhraða á öllum nútíma SSD diskum og 1TB Sata diski.

Ég fór úr 1TB Sata2 diski í 128GB Crucial M4 tengdan í Sata2 og er með a.m.k. tvöfalt meiri hraða í öllu
og í mörgu öðru 2.5 sinnum meiri hraða og væri með meiri mun ef ég væri með Sata3 port.

Modus ponens

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf GuðjónR » Lau 07. Júl 2012 15:47

Gúrú skrifaði:Crucial M4 er mesti bang for the buck 128GB diskurinn að mínu mati eftir að hafa skoðað þetta í heilan dag.

Skrifhraði: allt að 175MB/s
Er það ekki frekar dapur af SSD? kannski ástæðan fyrir því að hann er svona ódýr??

Skjámynd

AciD_RaiN
Tölvuskreytingameistari
Póstar: 3942
Skráði sig: Lau 22. Nóv 2008 11:14
Reputation: 0
Staðsetning: Siglufjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf AciD_RaiN » Lau 07. Júl 2012 15:56

GuðjónR skrifaði:
Gúrú skrifaði:Crucial M4 er mesti bang for the buck 128GB diskurinn að mínu mati eftir að hafa skoðað þetta í heilan dag.

Skrifhraði: allt að 175MB/s
Er það ekki frekar dapur af SSD? kannski ástæðan fyrir því að hann er svona ódýr??

Ég var að versla Crucial M4 í vél sem ég er að gera handa pabba og hann er tengdur í SATA2 og það er alveg brilliant hraði og stórt stökk úr venjulegum SATA disk. Sjálfur er ég með OCZ Vertex 3 max iops og mjög ánægður með hann. Svo setti ég Corsair Force 3 í vél um daginn og hann er líka mjög góður :happy

Asus Sabertooth P67 | Intel Core i7 2700K 3.5Ghz @ 5.2GHz | Custom WC GREEN | Corsair Vengeance 16GB 1866MHz @ 2133MHz | Geforce GTX 680 2048MB | C: Samsung 830 256GB | Corsair AX850 | CM Storm Trooper (Autob0t Sk1ds) | Logitech G700 | Corsair Vengeance K60 |rigmods.com

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4356
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 408
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf chaplin » Lau 07. Júl 2012 16:23

GuðjónR skrifaði:
Gúrú skrifaði:Crucial M4 er mesti bang for the buck 128GB diskurinn að mínu mati eftir að hafa skoðað þetta í heilan dag.

Skrifhraði: allt að 175MB/s
Er það ekki frekar dapur af SSD? kannski ástæðan fyrir því að hann er svona ódýr??

Á SSD diskum skoða ég eingöngu IOPS og leshraðann, skrifhraðinn er bara plús ef hann er öflugur.

Skjámynd

CurlyWurly
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Fös 01. Jún 2012 03:29
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf CurlyWurly » Lau 07. Júl 2012 17:14

Sorry að ég sé að spurja, en getur einhver komið með stutta lýsingu á IOPS?

CM 690 II Adv | i5 2500K @ 3,3 Ghz | GA-Z68XP-UD4 | GTX 560 Ti Twin Frozr II | 2x4 GB Corsair Vengeance | Corsair HX750 |128GB Samsung 830 SSD | 500GB HDD
- CurlyWurly//HB

Skjámynd

Höfundur
frikki1974
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 316
Skráði sig: Mán 05. Jan 2009 21:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf frikki1974 » Lau 07. Júl 2012 18:43

CurlyWurly skrifaði:Sorry að ég sé að spurja, en getur einhver komið með stutta lýsingu á IOPS?

Ég spila Flight Simulator X mikið en runnar leikurinn mikið betra ef maður er með SSD disk? það er að segja ef maður hefur ágætis tölvu í leiðinni.

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf Gúrú » Lau 07. Júl 2012 19:28

GuðjónR skrifaði:
Gúrú skrifaði:Crucial M4 er mesti bang for the buck 128GB diskurinn að mínu mati eftir að hafa skoðað þetta í heilan dag.

Skrifhraði: allt að 175MB/s
Er það ekki frekar dapur af SSD? kannski ástæðan fyrir því að hann er svona ódýr??

Það eru náttúrulega bara shenanigans hjá hinum framleiðendunum að hafa "500MB/s" í lýsingunni á diskunum í sömu verðlínu,
í raunprófum þá eru þeir aldrei að ná því.

Annars nota ég skrifhraðann mjög takmarkað, ímyndaðu þér hversu oft þú ert að fara að skrifa >175MB af gögnum vs. það
hversu oft þú ert að fara að lesa >175MB af gögnum. Það er alveg á hreinu hvort er mikilvægara og hlutfallið líklega 1:25-40. :)

Getur hér séð muninn á raunhraða á mínum disk og Vertex 3 (verðlínunni fyrir ofan), auglýstur sem 500MB/s write.
http://www.anandtech.com/bench/Product/425?vs=350
Vertex average write speed 176MB/s af auglýstum 500MB/s... á móti 172MB/s af auglýstum 175MB/s hjá Crucial.

Crucial M4 er oft að mölva Vertex og Vertex er oft að mölva M4 en eitt er á hreinu og það er
það að M4 er að mölva Vertex í því sem að skiptir mig mestu máli og það er hlutfallið (kostnaður:hraðarnir sem skipta mestu máli). :)

Modus ponens

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2365
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf GuðjónR » Lau 07. Júl 2012 19:43

Gúrú skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Gúrú skrifaði:Crucial M4 er mesti bang for the buck 128GB diskurinn að mínu mati eftir að hafa skoðað þetta í heilan dag.

Skrifhraði: allt að 175MB/s
Er það ekki frekar dapur af SSD? kannski ástæðan fyrir því að hann er svona ódýr??

Það eru náttúrulega bara shenanigans hjá hinum framleiðendunum að hafa "500MB/s" í lýsingunni á diskunum í sömu verðlínu,
í raunprófum þá eru þeir aldrei að ná því.

Annars nota ég skrifhraðann mjög takmarkað, ímyndaðu þér hversu oft þú ert að fara að skrifa >175MB af gögnum vs. það
hversu oft þú ert að fara að lesa >175MB af gögnum. Það er alveg á hreinu hvort er mikilvægara og hlutfallið líklega 1:25-40. :)

Getur hér séð muninn á raunhraða á mínum disk og Vertex 3 (verðlínunni fyrir ofan), auglýstur sem 500MB/s write.
http://www.anandtech.com/bench/Product/425?vs=350
Vertex average write speed 176MB/s af auglýstum 500MB/s... á móti 172MB/s af auglýstum 175MB/s hjá Crucial.

Crucial M4 er oft að mölva Vertex og Vertex er oft að mölva M4 en eitt er á hreinu og það er
það að M4 er að mölva Vertex í því sem að skiptir mig mestu máli og það er hlutfallið (kostnaður:hraðarnir sem skipta mestu máli). :)

Jú þetta er alveg hárrétt hjá þér, auðvitað á maður að taka með fyrirvara "fræðilegum" spekkum. Og leshraðinn er það sem skiptir máli.
Ég var að skoða linkinn sem þú sendir inn, þessi diskur virðist alveg vera að gera sig. Hef samt sjálfur mesta trú á Intel diskunum.

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Er þetta góður stýrikerfisdiskur?

Pósturaf Gúrú » Lau 07. Júl 2012 19:57

GuðjónR skrifaði:Hef samt sjálfur mesta trú á Intel diskunum.

Já ég hef sjálfur alveg meiri trú á þeim sem diskaframleiðanda en ég hef of mikla trú á Tölvutækni til að láta það skipta mig máli.
Þriggja ára ábyrgð á disknum frá þeim og ég backa þennan disk bara upp vikulega. Endar í því að kosta mig 25 krónur á dag ef að hann bilar
slétt daginn eftir að ábyrgðin rennur út sem að mér finnst mjög fínt.

Modus ponens