Ég ætla að fá mér annað hvort en get ekki gert upp við mig hvora.
Megið endilega koma með kosti / galla við hvora fyrir sig, er ekki að biðja um fanboy rifrildi

Nördaklessa skrifaði:ef ég ætti pening til að henda í góða Tablet þá myndi ég skella mér á þessa
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 1b42d0beb3
AntiTrust skrifaði:Þetta eru þær tablets sem fá hvað besta dóma, svo það er erfitt að velja þarna á milli, amk hvað vélbúnað og gæði varðar. Svo fer það auðvitað eftir því hvaða kynslóð af iPadinum þú berð saman við Tabið, en í general eru þetta bæði hágæða tablets, góðir skjáir, gott build, mjög endingargóð batterý og með öflugt hardware.
Persónulega finnst mér Tabið mikið þægilegra í notkun, þó skjárinn sé heldur of sleipur fyrir mig. Það sem skiptir þessar vélar þó hvað mest að er að iPadinn keyrir iOS stýrikerfi á meðan Tabið keyrir jú Android ICS. Spurningin þín ætti því í raun að vera, hvort stýrikerfið viltu?
Moquai skrifaði:Samsung > Apple, just sayin'
hagur skrifaði:Fyrir casual browsing, e-mail og facebook hangs (og auðvitað einfalda leikjaspilun) þá er iPad bara svo mikil no-nonsense græja. Ofboðslega solid og stabíl og batterí-ið endist og endist. Skjárinn á iPad 3 er svo bara eitthvað sem maður þarf að sjá með berum augum, hann er gorgeous.
Ef þú telur þig þurfa eitthvað meira en iOS býður uppá, þá er Android tablet væntanlega málið. Fyrir allt annað dugar iPad vel og rúmlega það.
Tesli skrifaði:Ég er mjög ósáttur við nýja Ipadinn, keypti hann við launch og búinn að eyða 150$ í allskonar hugbúnað og leiki.
Ósáttur með:
*Lélegt browsing experience (dett alltaf í fartölvuna við heavy browsing)
*Facebook og youtube öppin eru ömurlega léleg (fá 2-3 stjörnur þannig að fólk er almennt sammála mér í þessu)
Ég nota minn iPad (reyndar bara 1st gen) eiginlega bara í að horfa á myndbönd og vafra. Svo er hann auðvitað fínn fyrir þessa smáleiki.Tesli skrifaði:Ég er farinn að hætta að nenna að gera neitt nema streama video og lesa fréttir í honum. Annað geri ég bara í fartölvunni.
Veit ekkert hvort aðrar tablet séu betri, efast um það. En ég ætla að selja Ipadinn og kaupi mér síðan netta fartölvu með "retina" skjá þegar þær koma út.
Ná varla að krassa meira en facebook appið á iPadnum hjá mér. Alltaf að krassa. Reyndar gerir Safari svolítið af því líka. Kemur ekkert notification. Bara eins og maður hafa óvart ýtt á home takkann en svo þarf að kveikja á appinu uppá nýtt en ekki að restora því eins og venjulega.hannesstef skrifaði:ég held að android tabletin eigi það til að hökta og forrit crashi meira