Pósturaf Stuffz » Sun 24. Jún 2012 14:01
Ok hefur eitthver tekið eftir verðskránni á hringdu.is?
Ég var að fara frá voddafukk og yfir í Landssímann fyrir ekki svo löngu síðan og það var bölvað vesen Kjarneðlisfræðingarnir hjá voddafukk héldu áfram að rukka mig lengi eftir að ég var farinn yfir til Landsímans, og tók alveg 2+ vikur í stjarnfræðilega útreikninga í ofurtölvu til að færa tenginguna á milli, nei virkilega hvað er að tefja fyrir, eitthver sagði mér að tæknilega gæti þetta tekið minna en 2 daga, það þarf að fara og tengja eitthvað í kassa og svo er það auðvitað pappírs vinnan. svo hvort er að taka meiri tíma hið verklega eða það skriflega, mér segir hugur að það virki letjandi á netnotendur að skipta yfir í nýjan þjónustuaðila eftir því sem tafir á skiptunum eru meiri og það þjóni mest hagsmunum þeirra sem þegar hafa flesta netnotendur hjá sér.
Allavegana núverandi nettenging sem ég er með er að kosta mig 2x meira en dýrasta hringdu.is tilboðið en býður manni 2x meiri hraða og 2x meiri erlendan niðurhals kvóta, svo ergo titillinn "..OF GOTT TIL AÐ VERA SATT?"
Fljótt í bragði dettur manni í hug að annaðhvort er hringdu.is eitthver bóla eða hin stóru fjarskiptafyrirtækin hafa verið að taka suma feitt í tja.. netinntakið með sína verðskrá
"Frábær verðskrá á ljósi
10 GB 20 GB 40 GB 80 GB 250 GB
Heimasími frá 695 kr. 695 kr. 695 kr. 695 kr. 695 kr.
Hraði 100 Mb/s 100 Mb/s 100 Mb/s 100 Mb/s 100 Mb/s
Erlent niðurhal 10 GB 20 GB 40 GB 80 GB 250 GB
Sjónvarp** Já Já Já Já Já
Router leiga*** 395 kr. 395 kr. 395 kr. 395 kr. 395 kr.
Mánaðargjald 1.995 kr. 2.495 kr. 2.995 kr. 3.995 kr. 4.995 kr."
Síðast breytt af
Stuffz á Sun 24. Jún 2012 14:06, breytt samtals 1 sinni.
Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Áhugamál: Heimspeki, Tölvur, Tækni, Vélbúnaður, Mannlíf, Greiningar, Leikir, Hjólatúrar, Myndbandsgerð, Gervigreind, Kerfisfjölfræði, Framtíð
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander