Varðandi íhlutakaup hjá mér þá lítur allt út fyrir að ég láti gamla AMD 1090t jálkinn duga og þar sem ég er nýlega kominn með tvö 6950 þá fer ég líklega ekki í nein skjákortskaup. En það sem mig vantar sárlega er stærri SSD diskur hef fengið reynslu á 60 gb disk og hann er engan veginn nógu stór. Nýr SSD er sem sagt efstur á lista í ár, í framhaldi af því vantar mig einnig orðið 2 tb disk undir gögn. Þá er það upptalið , nema að ég gerist intel maður og skipti alveg um gír í sumar

Varðandi jaðartæki þá eru gömlu HD-555 alveg kominn á síðasta snúning og mig langar að prufa þráðlausu Sennheiser annað hvort RS 170 eða 180 samanber http://pfaff.is/Vorur/4395-rs-180.aspx .
Það síðasta sem mér dettur í hug er meira svona "cosmetic" en ég hef verið voða skotinn í Corsair kössunum og langar dálítið að skipta mínum HAF 932 út fyrir Corsair 600 hvítan
