Pósturaf Stuffz » Lau 24. Mar 2012 00:46
Gunnar skrifaði:Stuffz skrifaði:1x Logitech MX518
og
1x Logitech MX510
Logitech MX518 sem er með nú er Nr2, en ég átti aðra eins fyrir.
Eldri músin (1600dpi) fór að detta út sennilega vegna þess að það haf'i strekkst á snúrunni allotf í þau rúmlega 4-5 ár sem hún entist, svarta lakkið á lógóinu á henni er mest allt farið eftir þúsundir lófasveittar orrustur í leikjaheimum

Nýrri týpan (1800dpi) er samt orðin slöpp í vinstri takkanum eftir minna en ár

Reyndar varðandi eldri týpuna af MX518, það var alveg ótrúlegt hvað hún entist lengi, ég fór og tékkaði á wikipedia og þar segja þeir að það hafi verið algengt vandamál með eldri týpuna að hún dytti úr sambandi svona svo kannski var það ekki að það hafi strekkst á snúrunni á minni, þetta vandamál varð ég reyndar ekki var við fyrr eftir mörg ár svo maður veltir fyrir sér hvort það hafi verið hardware eða þá frekar software vandamál, að jafnvel nýrri setpoint driverar hafi verið gallaðir eða með lélegan stuðning við svona lífseigar eldri mýs.
allavegana hér umfjöllun um músina á
http://en.wikipedia.org/wiki/Logitech_MX-518
lentí í því fyrir stuttu að músin var að detta út, svo endanlega datt hún út um daginn. Ég tók músina í sundur og setti brotna hlutinn í kaplinum inní músina svo hann væri ekki á hreyfingu og setti hana svo saman og núna er hún eins og ný. núna er bara að bíða í 5-6 ár og gera þetta aftur

Nice

ég reyndar fékk hugmynd rétt eftir að skrifa þetta áðan og eftir að lesa um muninn á nýrri og eldri á wikipedia, benlínis bara sensorinng er annar en hitt er það sama, svo ég opnaði báðar MX518 mýsnar og prófaði innri vinstri takkana og á nýrri voru þeir dauðir en voru enn í lagi á eldri músinni, svo ég skrúfaði græna spjaldið sem takkarnir eru á úr og tók úr sambandi við afganginn af innviðunum á eldri og færði yfir í nýrri músina og tengdi og skrúfaði spjaldið við innviðina þar, og hokus pokus etta virkar núna.
gott að ég henti ekki gömlu mx518 músinni þegar ég fékk mér nýju segi ég bara, enda alveg tilvalið í varahluti, bara verst að ég skemmdi smá límfletina sem fela skrúfurnar, hefði mátt fara hægar í að fjarlægja þá.
Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Áhugamál: Heimspeki, Tölvur, Tækni, Vélbúnaður, Mannlíf, Greiningar, Leikir, Hjólatúrar, Myndbandsgerð, Gervigreind, Kerfisfjölfræði, Framtíð
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander