Pósturaf vesi » Fim 15. Mar 2012 00:20
Miðaldra maður á Selfossi keypti sér nýjan Mercedes til að halda uppá það að konan hans fór frá honum. Fór svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra. Topp lúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur sem ennþá prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.
Hmrmff... þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens og hann gaf í... og gaf aftur í .. Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig "Hvað er eiginlega að mér?" ..hægði á og keyrði út í vegarkantinn.
Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn:
"Þetta hefur verið langur vinnudagur" sagði hann "ég er að ljúka vaktinni og það er föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga á yfirvinnu, - ég gef þér séns. Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum ofsahraða sem þú fórst á ,betri en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta sinn"
Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks:
"Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var, skal ég segja þér, svo hræddur um að þessi lögga værir þú og nú vildiru skila henni"
"Góða helgi" sagði löggan
MCTS Nov´12
Asus eeePc