Fyrst vildi ég ekki trúa þessu, en svo þegar á vikuna leið þá varð það ljóst að þessi óhugnuður hafði átt sér stað. Ég sem er mikill baráttumaður fyrir réttlæti og rökrænni hugsun varð hálf bumbult við að lesa þessi tíðindi og ég gat engan veginn skilið það hvers vegna svona óréttlæti og mannvonska fyrirfinnst í jafn háþróuðu landi eins og Noregi.
Stuðningsmenn þróunarkenningarinnar hafa eflaust hoppað sína af kæti við þessar fréttir frá frændum okkar Norðmönnum en þeim sömu var skellt aftur jafnóðum niður á jörðina seinna þetta kvöld þegar mikils metnir menn í okkar samfélagi komu lækninum norska til varnar á samskiptasíðunni Facebook.
Gunnar í Krossinum reið á vaðið rétt að ganga 11 um kvöldið og sagði orðrétt: "Þegar menn hafa ekki rök beita þeir ofbeldi. Þetta er farið að gerast óþægilega nærri okkur."
Og 5 mínútum síðar þá var það enginn annar en Guðbjartur úr tölvuversluninni Kísildal sem tók upp hanskann fyrir lækninnn í norðri og sagði orðrétt: "Það er bannað að benda á það að keisarinn sé ekki í neinum fötum :/"
Andstæðingar sköpunarkenningarinnar hafa eflaust sopið kveljur þegar þeim varð ljóst hvaða hákarlar höfðu ljáð umræðunni rödd sína og sýnt stuðning við lækninn og jafnframt lýst frati á þróunarkenninguna án þess þó að falla í gryfju rökleysu og hroka.
Í næstu athugasemdum á eftir þá fer Guðbjartur yfir víðan völl og hrekur á brott ýmsar staðreyndir Darwins hvað varðar þróunarkenninguna og það má segja að hann Guðbjartur hafi einfaldlega pakkað þeirri kenningu saman fyrir fullt og allt og hent henni út í hafsauga á aðeins c.a. sólarhring. Geri aðrir betur!
Það er þó lækninum huggun harmi gegn að þrátt fyrir það hafa lent í miklu óréttlæti þá er til nóg af víðsýnu fólki í heiminum eins og Gunnar og Guðbjartur sem láta ekki klappstýrur vísandanna skyggja á hina heilögu ritningu baráttulaust.
Hér svo linkur á umræðuna: http://www.facebook.com/profile.php?id= ... 87&sk=wall - Darwin
