Djfls rugl er þetta, ekki hægt að fara út og bara þú veist labba! Stórhríðir og asahlákur á víxl, með tilheyrandi ófærð fyrir allt og alla, og svo massív svell, polla og viðbjóð sem gerir þetta land bara ógeðslegt að búa á. Þetta er ekki bara búið að vera svona í nokkra daga, heldur tvo heila mánuði! Ekki hægt að ganga á göngustígunum, ekki hægt að hjóla, skokka, eða neitt.
Enginn annar kominn með nóg af þessu?
Eigum við ekki bara að reyna flýja þetta land á hlýrri staði með stöðugra veðurfar, og möguleiki á útiveru 99% tíma ársins frekar en 1% tíma ársins? Vá hvað maður er kominn með upp í kok. Skammdegi, bleyta, vindur, bla bla...
Allavega, skipið til Ameríku fer kl 9 í fyrramálið.
