Síðan er það um 23:00 á Þorlák að allt dettur út aftur…

Næ á þjónustufulltrúa Vodafone. Hann vísar á Gagnaveituna sem er með 24/7 þjónustuver. Nema hvað um helgar er það einungis fyrir fyrirtæki og ekki einstaklinga. Sem sagt ég átti að vera net, síma og sjónvarpslaus frá föstudegi til þriðjudags

Aftur á Aðfangadagsmorgun datt boxið út. Þá hringdi ég enn og aftur í Vodafone. Þeir eru nánast búnir að gefast upp þegar okkur datt í hug að resetta boxið (tannstöngull í resett gatið milli tengja). Við það hrökk þetta í gang og tórir enn.
Ég ætla að láta skipta út boxið sem fyrst. Mér er nokkuð sama þótt það tóri eftir resettið – þetta er allt of óstöðugt til að treysta á. En lærdómur af þessu:
- EKKI treysta einu stykki fyrir mikilvægum þjónustum! Sérstaklega ekki stykki frá Ítalíu.
- Get ekkert kvartað yfir þjónustunni sem Vodafone veitti. Tæknimennirnir voru hjálplegir og fróðir en bara gátu lítið gert. Samt finnst mér að Vodafone eigi að falast eftir að hafa varabox, power supply (hugsanleg orsök vandans hjá mér) og/eða tæknigetu til að skipta svona út. Það er ekkert stórmál að vera net- síma og sambandslaus í 24 klst. en þegar heil helgi (hvað þá 3 daga jólahelgi) er undir þá er ekki hægt að bíða.
- Gagnaveitan er EKKI að fara að skipta út biluðum boxum hjá einstaklingum utan vinnutíma. Ef bilar hjá þér þá ferðu bara í röðina og þeir koma svo þegar þeir mega vera að því. Það getur víst verið allt að viku bið.
- Ég ætla að gera backup áætlun með nágrannanum (sem er líka með ljós) þannig að ég nái amk. sjónvarpi þegar svona kemur upp. 1 stk. 20 metra netkapall þræddur í garðslöngu ætti að þola að liggja milli húsa.
- Ég reikna með að ég hætti með heimasímann í ljósleiðaranum. Búið að vera fullt af böggi og það er ekkert að skána. T.d. ef hringt er úr ip síma í minn þá rofnar ekki línan eftir að hinn leggur á nema ljósleiðaraboxið er endurræst.
- Ég ætla að endurskoða það að vera ekki með hefðbundið loftnet. Fór í ljósið vegna þess að loftnetslögnin var léleg. Reikna með að ég geri tilraunir með inniloftnet eða dragi nýtt í gömlu lögnina. Því miður.
- Ég ætla að verða mér út um annan straumbreyti fyrir ljósleiðaraboxið.