500W er meira en nóg ef þetta er frá góðum framleiðanda, ef ekki þá er það ekkert víst. Nafn á fyrirtækinu sem framleiðir aflgjafann eða vöru-heiti/númer væri gott.
benzmann skrifaði:víst hann er með 775 örgjörva, þá er nokkuð öruggt að móðurborðið hans sé með PCI-ex16 rauf sko. aldrei séð 775borð með agp rauf
Ég var aðallega að hugsa um atvik sem ég lenti í með Abit(socket 775) móðurborð þar sem þurfti að niðurfæra BIOSinn til þess að setja eitthvað nýrra en Nvidia 7950 GTS í. Kannski frekar langsótt þar sem ég hef nú ekki oft séð það gerast(aðeins einu sinni). Ég vil samt reyna mitt besta í að vera ekki að senda fólk út að kaupa eitthvað fyrir tugi þúsunda sem það hefur svo ekkert að gera við, til þess þarf ég meiri upplýsingar.
En það er alveg rétt, þessar upplýsingar hjálpuðu lítið. Ég veit ekkert um þetta móðurborð sem hann er með svo ég get lítið sagt um það, það er allaveganna ekki Abit svo það er +.
Miðað við að aflgjafinn keyrði 8800 GTS kort áður og móðurborðið er ekki Abit þá líklega virkar þetta, get samt ekki gefið 99% stimpilinn á þetta því það vantar meiri upplýsingar.
Corsair Carbide 400Q| MSI Nvidia 2080| AMD R9 5900X| Gigabyte X470 Aorus Gaming 5| EVGA SuperNOVA 750 G3