Jæja, þá er maður loksins kominn með einhverja almennilega kælingu. Þetta er ekki alveg tilbúið; ég á eftir að redda mér viftustýringu fyrir vifturnar á radiatornum og eitthvað fleira. Einnig er mjög pirrandi að x2 8-pin 12v CPU power tenglarnir eru of stuttir þannig að þeir verða að vera fyrir framan allt

— sem mér finnst vera frekar ljótt — þannig að ég verð að panta mér framlengingu. Svo eru tvö molex power tengi á mjög fáránlegum stað á móðurborðinu sem er auka power fyrir PCI-Express brautina (Það var mælt með því, í bæklingnum, ef maður er með tvö grafík kort eða fleiri að tengja þau út af stöðugleika). Ég á eftir að overclocka kortin í drasl og sama með örgjörvann en ég prufaði að spila Battlefield 3 og bæði 580 kortin fóru ekki yfir 41°

Kem með screens af hitatölum seinna.
Hér er svo innkaupalistinn:
Móðurborð:
Gigabyte AssassinCPU water block:
EK-Supreme HF High-Flow — Acetal + EN (Nickel)GPU water block:
2x Koolance VID-NX580Radiator og viftur:
XSPC RX480 með x8 Scythe GT1850 í push/pullForðabúr:
FrozenQ Liquid Fusion Dual Bay Red Helix (black sleeving)Pumpa:
Swiftech MPC655 - með stýringuSlöngur:
12 ft. PrimoFlex Pro LRT UV Red — 7/16 x 5/8 Annað:
Koolance 1/2" barbs, Bitspower 1/2" barbs, Bitspower Crystal Link Tube for SLI / crossfire, IandH Silver KillCoil.Myndir: (Já, ég er frekar lélegur að taka myndir

)










Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m