Ég hef aldrei heyrt um þetta fyrirtæki en vinkona mín lenti víst í leiðindum við þá.
Ég vil bara benda á að þetta er haft beint eftir henni og sel það því ekki dýrara en ég keypti það.
En hún fór allavega með Makkann sinn þangað þar sem þeir auglýstu fría bilanagreiningu. Svo þegar hún kemur að sækja tölvuna segist gaurinn hafa verið í 10-15 klst að reyna að laga hana og rukkaði hana um einhver ósköp. Eins og hún lýsti vandamálinu fyrir mér, var ekkert að tölvunni nema að stýrikerfið kveikti ekki á sér.
"Gaurinn bilaðist því ég neitaði að borga því ég bað hann aldrei að laga tölvuna. Hann tók tölvuna úr sambandi, grýtti henni í mig, öskraði "komdu þér héðan út og láttu ekki sjá þig hérna aftur" og skellti hurðinni á mig!"
Mér finnst þetta einum of. Maður auglýsir ekki fría bilanagreiningu, gerir svo við tölvuna án þess að láta viðskiptavininn vita og rukkar hann svo?
