Vil líka benda þér á að THX certification er verulega overrated.
Þetta er ekki e'h spes encoding eða neitt slíkt þetta er ekkert meira en bara certification á því að búnaðurinn hafi staðist kröfur Lucas Sound, svo einfalt er það. Ég hef prófað nokkra Stereo magnara til að keyra þessa ES100-CH hátalara mína og sá sem að höndlaði það best var Harman Kardon HK 3490.
Til samanburðar hafði ég; NAD C 725BEE, Pioneer A35-R (sem að átti að heita top-of the line Elite e'h) og svo Yamaha R-S500.
Fannst mér NAD koma með besta soundið á lægri stillingum en kúkaði alveg upp á háls um leið og maður fór að blasta, surge á lágu tónunum og allt of mikið 8k-12k band.
Pioneer drullaði alveg í sig með power, en hljómgæðin voru lala á lægri stillingum en bötnuðu því hærra sem að var stillt en hljóðið var algjör drulla þegar að magnarinn byrjaði að svelta í afli sem að varð mjög augljóst strax.
Yamaha magnarinn hélt powerið vel út og soundaði vel, djúpar og fínar nótur í lægri stillingum en fade-aði aðeins á hærri stillingum en stóð sig samt betur en NAD magnarinn og var því minn kostur að undanskildum Harman Kardon HK3490 sem að var án vafa betri en allir hinir, ekkert surge og keyrði hátalarana mjög vel á öllu volume level-inu..
Þó að ég verði hreinlega að hrósa þessum gamla góða Thomson magnara sem að ég er með, því að hann er búinn að trukka vel í ein 10ár næstum, en hann var keyptur sem hluti af 5.1 kerfi árið 2003 en hafði möguleikann á 7.1 en því miður bara 35x7 hehe... en þó 65x2

Án þess að vera að segja að þú sért að tala neitt með rassgatinu held ég að menn ættu bara einfaldlega að hafa samanburð af því sem að þeir eru að tala um áður en að þeir fara að ráðleggja svona, fyrir utan það að ég skil ekki þetta hatur manna í garð Harman/Kardon, það er jú alveg góð og gild ástæða fyrir því að þetta er notað í dýrari týpur af BMW, Mercedes og Porsche (Harman Kardon Logic7). Ég hef átt BMW með slíku kerfi og það var hreinn unaður, sjálfvirk bjögunarstilling sem að virkaði alveg eins og maður vonaði og það var alveg sama hvort að maður var að hlusta á Dr.Mister & Mr. Handsome eða Ludwig van Beethoven, allt hljómaði þetta jafn fallega og flott

*edit*
hagur, þú póstaðir þínu svari einmitt meðan að ég var að skrifa þessa ritgerð hérna, en Yamaha er klárlega að standa sig vel í sínum efnum.
Ég er reyndar ekki hrifinn af speccunum á hátölörum frá þeim, fékk aðeins að trukka þeim uppi í Hátækni þegar að ég keypti sjónvarpið, en var ekki mjög hrifinn.
Grunar reyndar að magnarinn sem að þetta er keyrt á hjá þeim sé ekki kannski beint up to spec án þess að ég hafi skoðað það neitt.
ROG Crosshair V - Formula Z | AMD FX 8350 X8 @ 4.55GHz | Corsair XMS3 32GB DDR3 (4x8GB) | 2x WD 1TB & 1x Seagate Constellation 2TB (4TB storage)
Samsung SSD 840 EVO 750GB | ASUS HD7770 x2 (2GB) | Corsair H100i CPU cooler | CoolerMaster Silencio 650 | Forton Aurum Modular 1200w Pro PSU