KristinnK skrifaði:Halli13 skrifaði:Nei þetta eru tvær en veist ekki í hvorri spurningunni er logið að þér, gætir aldrei vitað það í einni.
Lausnin skal augljóslega felast í einni spurningu sem gerir þér kleift að ákveða hvor hurðin leiðir að öryggi, þótt svo þú vitir ekki hvor segir satt. Og lausnin er löngu komin:
natti skrifaði:"Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka"? Og svo vel ég hina hurðina.
Til þess að útskýra þetta betur áður en önnur redundant spurning kemur hingað.
Gefum okkur að "rétt" hurð sé sú hægri.
Og ég spyr "Hvaða hurð mun hinn vörðurinn segja mér að taka?"
Ef ég spyr þann sem segir alltaf satt, þá veit hann að sá sem lýgur alltaf myndi svara "vinstri", og svarar mér því "vinstri".
Ef ég spyr þann sem að lýgur alltaf, þá veit hann að sá sem segir alltaf satt myndi svara "hægri" og lýgur því að mér að hann myndi svara "vinstri, svarar mér því "vinstri".
Þannig að ég er með eina spurningu, ég spyr hana einu sinni, og það skiptir ekki máli hvorn vörðinn ég spyr, ég mun alltaf fá sama svarið. (vinstri)
Þar sem ég veit að svarið sem ég fæ er alltaf "röng" hurð, þá veit ég auðvitað að "rétt" hurð er andstæðan, eða sú "hægri".
Mkay.