P4 eða Prescott nú vantar mér svör

Skjámynd

Höfundur
DaRKSTaR
Geek
Póstar: 801
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

P4 eða Prescott nú vantar mér svör

Pósturaf DaRKSTaR » Fös 02. Apr 2004 12:27

ég er að fara að kaupa mér örgjörva af ebay

mikið að hugsa um 3ghz prescott
en hef lesið að þessi örri sé að skila sama performance og 3ghz p4 örrinn.

nú spyr ég hvernig má það vera?
prescott er með 1mb chache en hinir með 512k
hlítur að vera betra að hafa meira l2 cache upp á hyperthreath eða hvað sem sem það heitir nú.

þar sem örrinn getur unnið 2 mismunandi hluti í einu hefur hann 1mb cache sem hann skiftir niður í 512k á hvort process í stað 512k á p4 ht örranum, þetta hlítur að skifta rosalega miklu máli ekki satt?

P4 3.0ghz 3.0 ghz CPU SL79L 800 HT 3E Prescott 1M 3ghz 169 dollara
Intel P4 3.00GHz Processor 800mhz FSB 180 dollara

fínustu verð á þessum örgjörvum.
nú er spurningin, er prescottinn ekki mun betri örri?
hugsamlega gengur ekki retail viftan með prescottinum

er með móðurborð sem supportar prescott og 9800 pro skjákort og er að hugsa um sem mesta performance í leikjum... vísu með 512mb ddr 266 minni, verð að þrauka með það eitthvað áframm.

látið svörum rigna inn.




wICE_man
ÜberAdmin
Póstar: 1301
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 53
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fös 02. Apr 2004 13:08

Prescott er vissulega með fleiri transistorum en Northwood en það þýðir ekki að hann sé betri.

Prescott er nefnilega með mun lengri pípu en Northwood, þ.e. 31 stig í stað 20, þannig að í forritum þar sem mikið er um ófyrirsjáanleg hopp þá þarf hann lengri tíma til að fylla pípuna aftur eftir að hafa sturtað henni við ranga hoppágiskun. Ennfremur þá er lengri töf á að ná í hluti í L2 skyndiminnið en hjá Northwood sem eykur á neikvæð áhrif lengdrar pípu.

Áhrif þessa eru svo mikil að allar fancy endurbæturnar á prescott (stærra L1 og L2 skyndiminni, betri hoppágiskun og endurbætt hyperthreading) gera lítið annað en að vega upp á móti minnkaðri afkastagetu. Þannig kemur Prescott út á ca. sléttu gagnvart Northwood. Ástæða lengingarinnar á pípunni er sú að Intel vonast til að geta pumpað upp klukkuhraðan eitthvað meir en þeir hefðu getað með Northwood, það á þó enn eftir að verða að veruleika, enn er ekki hægt að fá 3.4GHz Prescott nema í takmörkuðum mæli.

Annað sem ber að nefna, Prescott er all svakalega heitur, reviewsíður eru búnar að mæla hann í 70-90 Gráðum á celcius og THD er uppá heil 103W og þá erum við ekki einu sinni að tala um algert hámark! Ef þú færð þér Prescott, þá er eins gott að passa sig að kæla hann vel.

Persónulega mæli ég þó með að menn bíði þangað til í sumar, þá verða komnir nýjir sökklar og nýjar steppingar sem vonandi munu minnka eitthvað þennan svakalega hita.



Skjámynd

Nemesis
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Mið 29. Okt 2003 01:46
Reputation: 1
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Nemesis » Fös 02. Apr 2004 15:16

Má ég spyrja; af hverju af ebay? Hvað ertu að borga mikið 3GHz Prescott þar og hvað kostar það eftir að þú hefur fengið hann sendann hingað m/ vsk og tolli? :o



Skjámynd

Höfundur
DaRKSTaR
Geek
Póstar: 801
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

hmm

Pósturaf DaRKSTaR » Fös 02. Apr 2004 15:56

169.00 USD = 12,206.81 ISK

vaskur og tollskírsla ætti ekki að vera meira en 4500kall.. þetta er jú tollfrjálst.

undir 17þús.
ódýrastur hér á 25.750

veit að þetta mun hljóma ótrúlega en ég skal útskíra hvar ég fæ alla þessa peninga inn á paypal.

málið er að ég spila leik sem heitir diablo 2 í hardcore á useast, það sem flestir vita ekki er að ameríkaninn kaupir hluti úr leiknum og er ekkert að spara peningana þegar að diablo 2 kemur, það er heavy erfitt að finna þessa hluti í leiknum sem ég er að selja þessvegna kaupa flestir þá bara á ebay til að þurfa ekki að eiða t.d heilum mánuði í að reina að finna þetta item, ég svindla smá.. nota forrit sem spilar leikinn fyrir mig 24/7 og pikkar upp það sem ég vill eiga.. kallinn er oftast fullur eftir daginn, t.d margir af þessum hlutum seljast fyrir 20+ dollara á ebay.

gróðinn er fínn, ég að vísu nota ameríkana í að selja fyrir mig og tekur hann 50% af gróðanum, enda vinnur hann alla vinnuna fyrir mig.
og kosturinn við að hafa hann er sá að ég get verslað hvað sem er af ebay, margir á ebay sem senda ekki milli landa, þar kemur hann inn í, kaupir hlutinn, testar hann og sendir hann áframm til mín, til gamans má geta að gaurinn borgar húsaleiguna sína með gróðanum sem hann fær úr þessu..

gróðinn er fínn, nýbúinn að kaupa all in wonder 9800 pro kort af ebay, er að bíða eftir að það komi, nú þegar er ég kominn með nóg fyrir 3ghz örgjörva með sendingarkostaði og öllu.

með öðrum orðum er ég að selja virtual dót í leik fyrir peninga sem ég nota í hardware kaup... eina sem ég borga úr eigin vasa er virðisaukinn og tollskírslan þegar hluturinn kemur til mín. má benda á að ef ati all in wonder 9800 pro væri seldur hér á landi myndi kortið kosta um 45-50þús úr búð hér..... hugsa um að taka örgjörva og sjá hvernig salan gengur hjá mér um helgina og páskana, ef þetta gengur vel ætti ég að geta tekið 512mb ddr400 kubb af bestu gerð með.

allavega ekki slæm útkoma 9800 pro og 3ghz örri fyrir rusl í leik..
það er ekki öll vitleisan eins :D



Skjámynd

Nemesis
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Mið 29. Okt 2003 01:46
Reputation: 1
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Nemesis » Fös 02. Apr 2004 16:01

Þetta er nú með því sniðugra sem ég hef heyrt! :)



Skjámynd

Sveinn
FanBoy
Póstar: 728
Skráði sig: Sun 07. Sep 2003 20:04
Reputation: 4
Staðsetning: Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sveinn » Fös 02. Apr 2004 16:06

Ég nennti ekki að lesa bréfið allt en ef titilinum að dæma ertu að spyrja um hvort þú ættir að kaupa prescott eða p4.

Persónulega finnst mér p4 betri því að prescott hefur fengið dóma yfir að þeir ofhitni, sem er í rauninni í lagi ef þú ert með mjög góða viftu en það er alltaf betra að hafa góðann örgjörva og vera viss um að ekkert gerist svo eins og ég sagði myndi ég persónulega kaupa p4 ;)




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fös 02. Apr 2004 16:07

Íslenskt hugvit að störfum ;)




pyro
Ofur-Nörd
Póstar: 204
Skráði sig: Fim 26. Feb 2004 10:04
Reputation: 0
Staðsetning: RtotheVtotheK
Staða: Ótengdur

Pósturaf pyro » Fös 02. Apr 2004 16:14

SNILLD

reyndar heyrði ég eitt sinn af því sögu að lögreglan í bandaríkjunum hefði stöðvað þrælabúðir, þar sem 5 mexíkanar unnu 12 tíma vinnudag við að spila diablo og gera ekkert nema drepa troll og stela fjarsjóði, og svo kom einhver gæji og seldi allt draslið í leiknum og hirti gróðann...

spáið í þessu?!


AMD XP2500+@2.1Ghz, Abit AN7 , 512mb PC2100@264mhz, GF4 Ti4200 128mb@275/550 AGPx8

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 02. Apr 2004 21:35

ég held að prescott sé ekkert heimskuleg kaup, ef þú ert með max3 þar að segja, það er eina borðið sem ég veit til að ráði ágætlega við hann eftir bios uppfærslu. mér sýnist á öllu að prescottinn stökkvi soldið langt frammúr northwood um leið og sse3 kemur í gangið. þeir eru að keyra með mjööög svipað performance, stundum er prescott eilítið undir, en sumstaðar er hann kominn langt frammúr. ég býð bara spenntur eftir betri prescott móðurborðum, næsta socketi og sse3 stuðningi í forritum :D


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Fös 02. Apr 2004 21:38

Lol ég hef nú aldrei heyrt að CPU sé með transistorum :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 02. Apr 2004 21:41

örgjörfar eru bara samansafn af transistorum.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3769
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 132
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Fös 02. Apr 2004 21:43

Þá ertu nátturuleg að meina einhverskonar nano transistorum :)



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 02. Apr 2004 21:44

það kallast transistorar sama hvað þeir eru stórir..


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Höfundur
DaRKSTaR
Geek
Póstar: 801
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

:)

Pósturaf DaRKSTaR » Lau 03. Apr 2004 02:58

ebay tók kipp.. ameríkaninn fékk kaupæði þannig að ég náði að grípa einn 3ghz prescott á 165 dollara áður en þeir kláruðust..

http://www.giga-byte.com/MotherBoard/Pr ... 1000MK.htm

móðurborðið sem ég er með, fékk þetta fyrir eitthvað diablo dót.. ætla að láta þetta duga í bili, með bios update supportar það prescott.

næst á dagskrá er minni.. borðið supportar max ddr400, hvaða kubba ætti ég að fá mér helst upp á performance að gera?




SkaveN
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 317
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 00:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf SkaveN » Lau 03. Apr 2004 04:02

Corsair... engin spurning http://www.corsairmicro.com/corsair/pro ... 0c2pro.pdf

Jafnvel OCZ þau hafa verið að gera góða hluti :)




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 996
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 46
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Lau 03. Apr 2004 19:33

Prescott valda víst gróðurhúsaáhrifum af því að þeir hitna svo mikið.

Og síðast þegar ég vissi var það skrifað, "Mig langar".


Hlynur

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: :)

Pósturaf gnarr » Þri 06. Apr 2004 18:02

DaRKSTaR skrifaði:ebay tók kipp.. ameríkaninn fékk kaupæði þannig að ég náði að grípa einn 3ghz prescott á 165 dollara áður en þeir kláruðust..

http://www.giga-byte.com/MotherBoard/Pr ... 1000MK.htm

móðurborðið sem ég er með, fékk þetta fyrir eitthvað diablo dót.. ætla að láta þetta duga í bili, með bios update supportar það prescott.

næst á dagskrá er minni.. borðið supportar max ddr400, hvaða kubba ætti ég að fá mér helst upp á performance að gera?


treystu mér.. móðurborðið supportar miklumeira en DDR400


"Give what you can, take what you need."


Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Þri 06. Apr 2004 18:21

DDR 400 er hæsti offical staðallinn ;)

svo geturu hækkað þetta ef minnið ræður við ;)



Skjámynd

Höfundur
DaRKSTaR
Geek
Póstar: 801
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: :)

Pósturaf DaRKSTaR » Mið 07. Apr 2004 01:42

gnarr skrifaði:
DaRKSTaR skrifaði:ebay tók kipp.. ameríkaninn fékk kaupæði þannig að ég náði að grípa einn 3ghz prescott á 165 dollara áður en þeir kláruðust..

http://www.giga-byte.com/MotherBoard/Pr ... 1000MK.htm

móðurborðið sem ég er með, fékk þetta fyrir eitthvað diablo dót.. ætla að láta þetta duga í bili, með bios update supportar það prescott.

næst á dagskrá er minni.. borðið supportar max ddr400, hvaða kubba ætti ég að fá mér helst upp á performance að gera?


treystu mér.. móðurborðið supportar miklumeira en DDR400

þannig að ég ætti að geta sett
Kingston 512MB DDR500 PC4000 HyperX DDR RAM $169 stikkið..
sé ekki 256mb kubba á ebay.. var að hugsa um 2x 256mb kubba upp á dual ddr frekar en einn 512mb.. er það ekki mun betra?