Sveinn skrifaði:Já. hehe ég er svona náungi sem vill hafa allt "perfect" og það besta

[RANT]
Ég er einmitt svona náungi sem vil fá allt hið besta en ég rannsaka líka hlutina vel áður en ég kaupi þá og ég vil ekki borga of mikið. Þegar ég keypti mína tölvu, athugaði ég beinlínis alla þá tölvukassa sem voru seldir á Íslandi og ég get alveg lofað þér því að ég keypti þann besta sem völ var á! Þessvegna valdi ég Antec SLK 3700 og þar sem ég gat fengið hann aðeins ódýrar með því að kaupa hann í Expert undir öðru nafni gerði ég það auðvitað. Þú getur líka keypt þennan kassa í Boðeind undir Antec nafninu. Ég myndi allavega miklu frekar vilja Antec SLK 3700 en þennan In win kassa.
Þeir sem eru vilja aðeins hið besta verða að kanna hlutina vel sem þeir ætla að kaupa! Það eru allt of margir sem vilja kaupa hið besta en hafa ekki vit á því að athuga aðeins hvað er best. Þessvegna kaupir fólk Sony eða Bose eða Rolex eða Armani o.s.frv. af því það veit ekki að það eru til margfalt betri vörur og jafnvel á lægra verði, t.d. B&W eða Dynaudio hátalarar, Patek Philipe eða Jaeger-LeCoultre armbandsúr eða Borelli eða Kiton jakkaföt. Sama má segja um svo til alla hluti - fólk er alltof oft að láta blekkjast af fögrum auglýsingum og villandi sölumönnum. Það borgar sig að vita hvað maður er að eyða peningunum sínum í!
[/RANT]
Og hér með lýkur nöldri dagsins.
