Mig langar aðeins að skoða áhugann á símanum, ég er hér með 1-2 mánaðar gamlan LG Optimus 2X síma. Keyptur í Danmörku en ég er búinn að fá staðfest hjá Tæknivörum að hann sé í ábyrgð hérna heima.

Það sést ekkert á símanum fyrir utan pínulitið chip sem hefur farið af hægri hliðinni, uppi nálægt horninu. Ég tók plast filmuna af bak hliðinni af í vikunni, og það er ennþá plast filma yfir ál röndinni á bakinu sem stendur á "with Google". Ekki ein einasta rispa á glerinu enda er þetta með Gorilla Glass.
Það helsta við símann er 1GHz Dual Core, Tegra 2 chipsettið frá Nvidia, 1080p videoupptöku, 1080p videospilun, HDMI tengi á toppnum, IPS skjár (iPhone símarnir eru með IPS skjái).
Hleðslutæki, USB snúra og HDMI snúra fylgja.
Allar upplýsingar um símann;
http://www.gsmarena.com/lg_optimus_2x-3598.php
Síminn kostar nýr 100þús á flestum stöðum hérna heima, held að það sé fínt að byrja þetta bara í 60 þúsund. Semsagt, ég sel hann aldrei á minna en 60.000 kr íslenskar.
Endilega hendið boðum í þráðinn, þó ætla ég ekkert að banna ykkur að senda mér einkaskilaboð.
Athugið að ég áskil mér rétt til þess að hætta við "sölu" hvenær sem er.