Ekki kaupa Bose. Kauptu Sennheiser eða eitthvað sem er semi "pro audio". Af hverju? Til dæmis eru Bose QC ekki user serviceable og ekki einu sinni factory serviceable. Það sem það þýðir er að ef eitthvað brotnar (sem mun gerast, þau eru ekki jafn gerðarleg og eitthvað hannað fyrir power notendur) þá þarftu að kaupa ný. Færð kannski smá afslátt ef þú skilar gömlu.
Ég á Sennheiser HD 595 og HD 25 og þau eru bæði mjög fín (til mismunandi hluta reyndar). Hugsaðu um hvar og hvernig þú vilt nota þau. Ef þú ert að kaupa þér heyrnartól sem eiga bara að vera notuð heima við í tölvuleikjaspilun þá ættirðu að taka þér þæginleg opin heyrnartól (t.d. HD 5XX). Ef þú hefur í huga að nota þau mikið í vinnu- eða skólaumhverfi ættirðu að taka lokuð (HD 4XX eða HD 25, finnur eitthvað sem þér finnst þæginlegt) bæði til að vera tillitsamur og til að fá ekki umhverfishljóð inná þig (sem lætur þig þurfa að hækka meira og þá verður þú pirrandi gæinn). Lokuð bjóða ekki uppá alveg jafn fallegt og rétt hljóð (bassinn er aðeins off í lokuðum og það er erfiðara að greina mismunandi hljóð) þannig að sound spot í tölvuleikjum er mun auðveldara með opnum heyrnartólum.
Það er fullt af upplýsingum á netinu um þetta.
Google býður með einfaldri leit uppá miklar upplýsingar.
Bottom line. Hugsaðu fyrst um hvað þú ætlar að nota þau í. Vertu viðbúinn því að heyrnartólin sem þú kaupir eru ekki optimal í allt. HD 558/598 eru frekar "nýleg" sem er ástæðan fyrir því að það er ekki rosalega mikið um review á þeim en þau eru bæði mjög góð.
Hérna er
gott review um þau bæði.