Jæja, þá er loks fenginn botn í þess hrakfarasögu mína og starfsmenn tölvulistans hafa verið ekkert nema hjálplegir og eiga hrós skilið.
Ég fékk annað nýtt móðurborð þar sem hitt var eitthvað gallað, þeir töldu reyndar að það hefði skemmst vegna gamla aflgjafans míns en ég gat fært rök fyrir því að það væri ólíklegt, ég get þó ekki útilokað að það sé rétt hjá þeim en þeir allavega létu mig njóta vafans en sögðu að þeir vildu ekki sjá þetta móðurborð með þessum aflgjafa aftur
Ég skildi það svo sem vel, þetta var 3gja ára no-name aflgjafi svo ég get ekkert ábyrgst um gæði hans, en hann virkar allavega með gamla ASUS A7V jálknum mínum svo hann er ekki ónýtur.
Ég er allavega himinlifandi yfir því að vera loksins kominn með tölvuna í lag, (óttalega er maður fatlaður án hennar) og með nýjan 350W Fortron aflgjafa svo ég á vonandi ekki eftir að lenda í svona veseni aftur (allavega verður ekki hægt að kenna aflgjafanum um).