Tja, ég notaði þetta nick uppúr 2000 eða svo þegar ég var í Iðnskólanum í Reykjavík en byrjaði samt á einu öðru sem var aðeins svalara (amk. á þeim tíma). Málið er að þegar ég byrjaði í IR, sem var reyndar haustið '98, að þá var fyrsti Quake leikurinn aðalmálið og var hann mikið spilaður í skólanum bæði í tímum og á bókasafninu. Ég varð fljótt mjög flinkur í leiknum og var oft að rústa öllum svo einn daginn þá var ég farinn að lenda í því að mér var oft sparkað út af server þegar ég fór inná þá, kallaði mig alltaf ViruZ ef ég man rétt, þannig að ég varð að breyta nickinu og valdi DoofuZ því það hljómaði eins og ég væri algjör nýliði

Svo til að fela mig betur bakvið nýja nickið þá hætti ég að espa alla upp með skilaboðum eftir hvert kill (var með nokkur prógrammeruð á vissa takka)

Annars er ég löngu, löngu, löngu vaxinn uppúr þessu nicki og myndi glaður vilja breyta því, en eina leiðin til þess er að búa til nýtt account og ég tími ekki að missa post count

svo þetta verður bara að vera constant reminder um gömlu góðu dagana, sem er allt í lagi svosem

Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]